Birtingur - 01.06.1968, Blaðsíða 38

Birtingur - 01.06.1968, Blaðsíða 38
þrífast ekki í „næstum því hreinum“ íbúðar- hverfum. Ef „hreint" íbúðahverfi er byggt þéttar að einhverju marki, en án vinnustaða, rekumst við fljótt á bílastæða- og umferðar- vandamál og óþægindi af nábýli án nokkurra kosta. Hverfin verða þá aðeins örlítið meira „lifandi" án þess að grundvallarmein „hreinu hverfanna“ hverfi. Lítum næst á samgöngukerfið. Bílabrautakerfi aðalskipulags Reykjavíkur er án efa bezt unni hluti þess og sá lang stærsti. Það er eflaust já- kvæðasti og áhrifaríkasti þáttur þess. En til þess að það verði starfhæft og ódýrt má ekki ofhlaða það umferð. Til þess þarf öflugar strætisvagnasamgöngur. Strætisvagnakerfi er hins vegar ekkert í aðalskipulaginu. Þess er að- eins getið á stöku stað að strætisvagnasamgöng- ur þurfi að vera þægilegar. Þetta er alvarleg- asta eyða skipulagsins. Strætisvagnar eru því aðeins þægilegir að ferðir þeirra séu örar, þ.e. á ca. 5 mínútna fresti á annatímum og ca. 10 mínútna fresti á öðrum tímum. Slík tíðni næst aðeins með því að ákveða þetta samgöngu- kerfi, leiðir þess og stöðvar í höfuðdráttum áður en hverfin eru skipulögð, þ.e. í aðal- skipulagi. Notendur strætísvagna ganga ínnan hverfa en nota vagnana á milli hverfa. Gangstígakerfi er því nábundið strætisvagnakerfi. Þar eð hið síðarnefnda vantar í Reykjavík tákna hinir fagurlitu gangstígar skipulagskortsins lítið annað en strik á blaði, og verða vart notaðir af öðrum en sérvitringum á promenaði. Að síðustu hafa hinir erlendu sérfræðingar ákveðið hvernig framtíðarbyggð Reykjavíkur skuli líta út. Hér skulu byggð 1, 2, og 3 hæða hús nær eingöngu, meira að segja í nýja mið- bænum, samkvæmt hinni gullvægu reglu skógivaxinna landa, að ljótu litlu húsin hverfi í trjálundi. Þessi ákvörðun er smekksatriði. Hitt álíta flestir, að aðalskipulagi beri að vera grundvöllur smærri skipulagningar en ekki duttlungafull reglugerð um smekkvísi. Eftir þessa lauslegu þanka um skipulagsþróun síðustu ára og aðalskipulagið mætti draga nokkrar fljóthuga ályktanir. Það er þó ekki ætlun mín hér og heldur ekki að svara með einu orði spurningunni í upphafi þessa máls. Skipulagið allt ber þó þess merki, að hlýtt hafi verið í blindni 40 ára gömlum reglum um endur- og nýskipulagningu kolaspúandi iðn- aðarborga. Ákvörðun um gerð aðalskipulags er út af fyrir sig stórlofsverð, ýmsir þættir þess eru einnig samvizkusamlega unnir, en grund- vallarstoðir þess eru veikar og gamlar, og ósennilegt er að takast megi að byggja á þeim þróttmíkla og hrífandi l>org. Þegar slíkt verður fullyrt um skipulag snertir það lífsvenjur þús- unda manna, efnahagslíf og menningu borg- arinnar, menningu íslands. 36 HIRTINGUK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.