Birtingur - 01.06.1968, Síða 32

Birtingur - 01.06.1968, Síða 32
BJÖRN ÓLAFSSON ARKITEKT: ER AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR ÚRELT? Við mótum borgir, síðan móta þær okkur. Borgaþróun og skipulagning breytir lífsvenj- um okkar og lífsviðhorfum. Höfuðborgar- svæðið er nú heimkynni meirihluta Islend- inga, meirihluta sem stækkar. Skipulagning svæðisins er nú einn áhrifavaldur íslenzkrar menningar. Borgarskipulagning sú, sem nú er víðast beitt, er orðin gömul og hrum. Eins og margir áhrifamestu þættir nútímalífs varð hún til um aldamótin, náði fullum þroska milli stríð- anna, og er nú talin af flestum framúrstefnu- mönnum veikburða og vanmáttug. Nútíma borgarskipulagning varð til fyrir áhrif iðnvæðingarinnar og tilkomu bílsins sem sam- göngutækis. Henni óx fiskur um hrygg á fyrstu áratugum þessarar aldar og 1933 varð til stefnuskrá hennar, fullmótuð: La Charte d’Athenes, Aþenusáttmálinn. Samtök ungra arkitekta, C.I.A.M., sömdu sáttmála þennan á fundi í Aþenu þetta ár og síðan hefur sátt- málinn haft bein eða óbein áhrif á alla skipu- lagsvinnu af viti. Aþenusáttmálinn setur sér sem höfuðmark- mið að bæta umhverfi borgarbúa, hann setur meginreglur sem fara ber eftir í allri skipu- lagningu til að fullnægt sé þörf einstakling- anna fyrir Ijós, athafnasvæði og kyrrð, ein- staklingsfrelsi og félagsstarfsemi. Til þess að ná þessu takmarki leggur sáttmálinn til að jafnan séu gerð aðalskipulög borga sem kveða á um notkun helztu svæða. Aðalsvæðin verði íbúðasvæði, iðnaðarsvæði og miðbær, og þau verði vandlega aðskilin með „grænum svæðum“. Umferð gangandi fólks og bíla skyldi vera vandlega aðskilin og umhverfis að- alumferðaæðar bíla yrðu græn belti þéttvaxin skógi til að vernda hverfin fyrir ryki, stybbu og hávaða. Að lokum gerir sáttmálinn ráð fyrir því að nútíma byggingartækni sé beitt. til hins ýtrasta við skipulagningu borga. Þótt þessar tillögur sýnist eðlilegar nú, komu þær eins og hvirfilvindur inn í rykmettað logn arkitektúrskólanna um 1930. Þó var öruggt þá að hefðbundin gatnagerð skólanna eða sveita- rómantík úthverfanna yrðu ekki til lengdar tæki til að leysa vandamál borganna. Meiri hluti íbúa borga hins hvíta heims starfaði við iðnað, sem að miklu leyti var drifinn kola- orku. Ibúðir þessa fólks voru umhverfis verk- smiðjurnar eða inni í hávaðasömum sam- byggðum og þéttbyggðum borgum gjörsneydd- um ljósi, kyrrð eða garðsvæðum. Þessi atriði eru skýrt dregin fram í Aþenusáttmálanum. Öll atriði sáttmálans virðast fljótt á litið vera mannúðleg og skynsamleg. Hverju veldur þá, að talað er hér í upphafi um hrörnun „nú- tímaskipulags"? Svarið er að meginreglum þess hefur verið beitt gagnrýnislaust, þrátt fyrir gjörbreyttar 30 BIRTINGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.