Birtingur - 01.06.1968, Page 54
ÁRNI LARSSON: HLUTIR JARÐARINNAR
Sólin er á lofti.
Handan við ljósgráa marflata breiðu hraunsins
eru fjöllin upp við himin. Þau virðast öll liggja
í beinni línu, liturinn dökkblár og hann sker
þau greinilega úr umhverfinu.
Brúnir fjallanna eru næstum allar þráðbeinar,
eina og eina línu má þó sjá sem ekki er bein,
þá ýmist slök og hvelfist inn í bláan lit fjalls-
ins eða hún bungar fram í flöt himinsins.
Flestar brúnirnar eru þráðbeinar, línurnar
mjög skýrar enda þótt þær séu efnislausar og
hafi engan lit. Línurnar hallast á ýmsa vegu,
hver um sig hefur ákveðna stefnu og þær
mynda saman mismunandi gleið horn og blái
liturinn fyllir út í þau. Á móti kemur ljósi
litur himinsins sem ákvarðar að hálfu skilin
að ofan.
En útlínur fjallanna mynda fjölda horna. Þau
eru ýmist hvöss eða gleið, aldrei mjög hvöss,
þó að blái liturinn skerpi þau, hvessi þau sýnu
meira, þyngd blámans verður nánast áþreifan-
leg án þess að vera það.
Og himinninn er tær, ljósblár án nokkurra
skýja, enginn hvítur litur á hreyfingu. Niðri
við brúnir fjallanna er liturinn jafntær,
hreinn eins og gegnsær hlutur og útlínur
landsins ber við himin. Dökkblá hornin sker-
ast inn í flöt himinsins án þess að ákvarða
hann sem sneið í sérstökum fleti eins og him-
inninn sé í sjálfum sér út í bláinn, engan við-
miðunarpunkt hægt að finna í gegnsæi blám-
ans svo að hið óendanlega blasir við í litnum
ad infinitum.
Breiða hraunsins er ljósgrá. Áferð grámans er
jöfn hún teygir sig yfir að neðri skilum fjall-
anna. Hraunið virðist marflatt en það er ekki
spegilslétt. Það er grái liturinn sem er alls
staðar eins, sami gráminn sem þekur flötinn
og myndar hann sem eina heild. En yfirborð
hraunsins er ekki slétt þó að gráminn sé alls
staðar eins. Hann breiðir úr sér eins og stein-
gráar öldur á hafi, láréttar bylgjurnar teygja
úr sér í sífellu, hljóðar gráar. Gráminn er svo
jafn og mikill að hann þurrkar næstum út
mjóar sprungurnar sem kvíslast um breiðu
hraunsins, heildin rofnar og lágar öldóttar
hæðirnar verða að sundurlausum einingum
þegar sprungunum er fylgt eftir unz þeim
sleppir og það gráa tekur við.
Svartar sprungurnar liggja um allan grámann
og þær hluta hann í sundur. Grannar sprung-
urnar teiknast á grámann, hann verður margir
fletir og þeir virðast eins og mött glerbrot með
óreglulegum hliðum grárra flata í svörtum
grunni hraunsins.
Og sólin er á lofti í hvirfilpunkti. Himinninn
mjög blár og þegar bláminn nálgast sólina
verður hann enn ljósari næstum glær án þess
að skera fyllilega úr um hvort hann haldi
áfram að vera blár. Liturinn nálgast að verða
52
BIRTINGUR