Birtingur - 01.06.1968, Síða 65
sjötta tug aldarinnar. Hins vegar eru nýrri
verk Oldenburgs, unnin úr Vinyl, plasti og
lérefti, sennilega til að yfirgefa hina persónu-
legu expressionistisku áferð.
Það hefur verið sagt um matarskulptura
Oldenburgs, sérstaklega ísterturnar, hamborg-
arana, súkkuliðiterturnar og rjómabúðingana,
að þeir séu fylltir skemmtilegri næmni, eins
og að auka vatn í munni, en það væri til að
einfalda kraft þeirra. Sumir vilja halda því
fram, að skulpturar, eins og t. d. mjúku rit-
vélarnar, símarnir og fleiri verk í þeim anda,
gætu tengt hann við þróunarbreyttan súrreal-
ista, en það finnst mér fráleitt. Oldenburg
segir, að hann sé hrifinn af því, sem er við
mörk þess, sem kallast fallegt og þess, sem fólk
þarf að vinna við í fjöldaframleiðsluþjóðfélagi.
Oldenburg hefur látið frá sér fara bók, sem
heitir „Store Days“, er hún að sumu leyti
listaverk og að öðru leyti yfirlýsing (manifest).
Hér verða teknir nokkrir stuttir kaflar úr yfir-
lýsingunni, og nokkuð annað, sem varpar ljósi
á Oldenburg:
„Ég er fyrir list, sem er pólitísk, kynferðisleg,
mystisk og gerir eitthvað annað cn að sitja á
bossanum á söfnum.
Ég er fyrir list, sem vex upp án þess að vita
að hún er list.
Ég er fyrir list, sem fær form sitt af línum
lífsins.
Ég er fyrir list, sem er reykt eins og sígaretta
og lyktar eins og skópar.
Ég er fyrir list, sem blaktir eins og fáni.
Ég er fyrir list, sem farið er í og úr eins og
inniskóm, sem grefur holur, sem er borðuð
eins og búðingur eða yfirgefin eins og saur.
Ég er fyrir list, sem er hulin böndum, sem
haltrar, hleypur og stekkur.
Ég er fyrir list, sem grær í potti, sem kemur af
himnum um nótt eins og elding, leynist í
skýjunum og urrar.
Ég er fyrir list, sem er borin inn í könnu, eða
þvegin upp á ströndinni, sem opnað er og lok-
að fyrir með takka.
Ég er fyrir list, sem hjálpar gömlum konum
yfir götu.
Ég er fyrir kalda list, 7-up list, pepsi-list, sól-
skinslist, 9 centa-list, 15 centa-list, DRO-
bombu-list, menthol-list, L&M-list, 9,99-list,
núna-list, ný-list, hvernig-list, síðasta tækifæris-
list, aðeins-list, demanta-list, á morgun-list,
met-o-rama-Hst.
Ég er fyrir U.S, skoðaða ríkisstjórnarlist, stóra
A-list, stöðuga verðlagslist, gula þroskaða Hst,
sérstaka ímyndaða Hst, framleidda list, bezt
fyrir lítið list, full hreinsaða list, bananalist,
list, sem er rökuð af fótunum og burstuð af
tönnunum.
Ferningur verður dropalaga.
BIRTINGUR
63