Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 8

Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 8
f - \ Rannveig Þorsteinsdóttir: Okkar á milli sagt Kvenfélagasamband Islands er 25 ára nú á þessu ári, var stofnað árið 1930. Ákveðið hefur verið að minnast afmælisins með móti í Reykjavík í vor og bjóða til þess formönnum kvenfé- laga hvaðanæva af landinu eða í for- föllum formanns annarri konu úr að- alstjórn. Félög Kvenfélagasambandsins eru nú alls 212 og eru þau dreifð um allt landið. Fulltrúar þessara félaga hafa aldrei komið saman á einn stað, held- ur aðeins heima í sínu héraði. Hér er því um fullkomna nýung að ræða í málefnum sambandsins og var nokkur ótti um það, þegar farið var að ræða málið, að ekki mundi verða hægt að fá þátttöku frá félögunum. Það varð því fyrsta skrefið að leita til félags- formannanna um það, hvort þær myndu taka þátt í mótinu. Eftir þeim tilkynningum, sem borizt hafa, er óhætt að fullyrða, að þátttaka verður mjög mikil og almenn og er það sannarlegt tilhlökkunarefni fyrir konur þær, sem vinna að félagsmálum um allt land að eiga von á því að hittast og kynnast á þessu væntanlega móti. Fyrirkomulag mótsins verður sem hér segir: 6. júní, mánudag um kvöldið verð- ur mótið sett með hátíðasamkomu í Sjálfstæðishúsinu. Þar flytja ávörp for- seti sambandsins frú Guðrún Péturs- dóttir, Steingrímur Steinþórsson, fé- lagsmálaráðherra og heiðursforseti sambandsins, frú Ragnhildur Péturs- dóttir. Einnig verður upplestur, ein- söngur og kórsöngur. 7. júní, þriðjudag, verður fyrir há- degi opnuð sýning heimilisáhalda, sem komið verður upp í sambandi við mót- ið og verður mótsgestum boðið að vera við opnunina. Síðari hluta dags verð- ur samkoma í Tjarnarbíó, þar sem flutt verða erindi um málefni kvenfélaga- sambandsins. Um kvöldið verður sam- sæti fyrir mótsgesti. 8. júní, miðvikudag, verða utanbæj- arkonurnar gestir kvenfélaganna í Reykjavík. Verða þá heimsóttir merkir staðir í bænum og fleira gert, sem gestunum getur orðið til ánægju og fræðslu. 9. júní, fimmtudag eftir hádegi, verð- ur farið til Þingvalla. 1 heimleiðinni verður snæddur miðdegisverður að Hlé- garði í Mosfellssveit í boði kvenfélaga- sambandsins og lýkur mótinu þar. Daginn eftir, föstudaginn 10. júní, hefst svo landsþing K. í. Þetta væntanlega mót verður eitt hið stærsta kvennaþing, sem haldið hefur verið hér á landi, einkum þegar þess er gætt, að konur þær, sem boðn- ar eru, eru fulltrúar fyrir um 12000 konur. Boðið til formannanna um að Frh. á bls. 28. v 8 HÚSFREYJAN i

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.