Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 20

Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 20
á tréð notum við kringlótta burstamunn- stykkið. Það er einnig notað á óslétta fleti, t. d. lista o. fl. Hversdagsföt og dýn- ur er bezt að ryksuga með litlu munn- stykki. Gúmmunnstykkið er notað á miðstöðv- arofna, bækur, rimlagluggatjöld, kring- um fætur á húsgögnum o. fl. Á veggi er bezt að nota stóra bursta- munnstykkið, færið munnstykkið upp og niður vegginn, en ekki þvert. Auðvelt er að blása með ryksugunni með því að festa slöngunni við afturend- ann, og er t. d. ágætt að blása lofti inn í sængur og kodda, ef þau eru orðin bæld. Sumum ryksugum fylgir sprauta til þess að dreyfa möleyðandi vökva. Farið vel með ryksuguna og geymið hana á góðum stað. Bezt er að vefja rafmagnssnúrunni utan um belginn, og notið hana aldrei við önnur rafmagns- tæki. Munnstykkin er bezt að geyma í kassa með handfangi. Rykpokinn þarf að falla vel i ryksyg- una. Látið hann aldrei verða mjög fullan af ryki og losa á hann eftir hverja notk- un. Standi ryksugan ónotuð á pokinn að vera tómur. Ekki er ástæða til þess að fara út með pokann, á meðan hann er tæmdur. Bezt er að gera það á eftirfarandi hátt: Opn- ið belginn og leggið dagblað yfir pokann. Þrýstið pokaopinu vel að blaðinu og hafið síðan snögg endaskipti á pokanum. Hald- ið síðan pokaopinu fast við blaðið með fótunum á meðan rykið er hrist úr, skipt- ið um blað þangað til pokinn er orðinn hreinn. Þetta verður auðvitað að gera þannig, að ekkert rykist. Ef sogkraftur ryksugunnar minnkar, er fyrst að athuga, hvort slangan sé í lagi. Það er gert með því að bera saman súg- inn úr slöngunni og sjálfri ryksugunni. Ef eitthvað situr fast í slöngunni og stífl- ar hana, er oft hægt að ná því úr með því að tengja slönguna við blástursrörið. Ef það dugar ekki, má renna í gegnum slönguna mjóu skafti eða gildum málm- þræði. Áður en ryksugan er látin til geymslu, er þurrkað af henni með klút. Ágætt er að soga rykið úr burstunum með ryksugunni sjálfri. Bili ryksugan, eig- um við ekki að reyna að gera við hana sjálf, heldur láta fagmann annast það. Ryksugur eru yfirleitt með kúlulegum, og þarf þess vegna ekki að smyrja mótor- inn. Annað hvort ár er þó bezt að láta fagmann yfirlíta ryksuguna. Óp og óhljóð heyrðust úr barnaherberginu. María var send þangað til þess að stilla til friðar. Samt sem áður dvínuðu ólætin ekki, heldur versnuðu um allan helming. Faðir barn- anna leit þá inn til þ?ss að vita, hvernig á þess- um ósköpum stæði. Sá hann þá, að Pétur litli sat uppi í rúmi sínu og grenjaði svo hátt, sem hann gat. ,,Hvað er að þór, drengur minn?" spurði faðirinn. ,.Hún María sagði, að ef ég héldi áfram að gráta, þá kæmi stór, svört mús með græn augu og settist á rúmstokkinn hjá mér. En nú er ég búinn að gráta ósköp lengi, og samt kemur engin mús", sagði Pétur. 20 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.