Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 22

Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 22
stífþ«yti8 hvíturnar og setjið örlítinn sykur sam- an við. Hraerið rauðurnar með sykrinum í súpu- skélinni, smáhellið heitri súpunni út í. Látiö eggjahvíturnar með matskeið ofan á súpuna, setjið skálina í heitan ofn og bakið, þar til eggja- hvíturnar eru gulbrúnar. HRÆRÐ EGG 3 egg 3 msk. mjólk Vz tsk. salt 30 g. smjör Þeytið eggin litið eitt og hrœrið mjólk og salti saman við. Braeðið smjörið á pönnu eða í grunnum potti og hellið eggjunum í. Hrærið í, þar til eggin eru nærri hlaupin. Setjið eggja- hlaupið öðrum megin á pönnuna, og látið það vera við yl, þar til það er alveg hlaupið sam- an. Berið hrærð egg fram með hangikjöti, reykt- um laxi o. fl. EGGJAKAKA 4—6 egg %—1 tsk. salt 3—6 msk. rjómi eða vatn 50 g. smjörlíki Þeytið saman egg, salt og vökvann. Bræðið smjörlíkið og hellið eggjajafningnum á pönnuna. Bakið eggjakökuna við vægan hita og stingið í hana hér og hvar með gaffli, svo að hún hlaupi jafnt saman. Þegar kakan er stífnuð í gegn, er hún lögð saman á pönnunni og látin renna yfir á fat. Berið með eggjakökunni kjöt-, fisk-, rækju- eða grænmetisjafning. EGGJAKAKA m/hveiti 4 egg 1 msk. hveiti 1 dl. mjólk 1 msk. sykur 30 g. smjörlíki. Hrærið hveiííð út með mjólkinni. Hrærið eggja- rauöurnar með sykrinum. Blandið hveitijafn- ingnum saman við og síðast stífþeyttum eggja- hvítunum. Bræðið smjörlíkið og hellið eggja- jafningnum á pönnuna. Þegar kakan er ljósbrún að neðan, er henni rennt á hlemm, pönnunni hvolft yfir, kökunni snúið við og hún síðan bökuð á hinni hliðinni. Stráið flórsykri yfir kök- una, berið sultu með og borðið hana heita með kaffi. HOLLENZK SÓSA 3 eggjarauður 2 msk. volgt vatn 75—100 g. smjör fisk- eða kjötsoð, sítrónusafi Hrærið eggjarauðurnar. Hafið skálina niðri í vatni, sem er við suðu. Hrærið vatninu saman við og síðan smjörinu, svolitlum bita í einu. Þegar allt smjörið er komið í, á sósan að vera vel þykk. Bætið í hana soði og sítrónusafa eftir smekk. Berið hana fram með soðnum fiskrétt- um, t. d. kola og heilagfiski. Þessa sósu verður að borða strax. EGGJAKÖKUR 1 egg sykur, sama þyngd og eggið hveiti, sama þyngd Þeytið egg og sykur ljóst og létt. Hrærið hveitinu saman við. Setjið með teskeið á smurða plötu. Bakið ljósbrúnt við góðan hita. Úr þessu deigi mé einnig búa til kramarhús. EGGJAKREM 1 dl. mjólk 1 eggjarauða 1 msk. sykur 1 tsk. hveiti vanilla Mjólkin er soðin. Eggjarauðan er hrærð með sykrinum. Hveitið hrært saman við og síðan mjólkin. Hellt í pottinn og hrært S, þar til sýð- ur. Kælt. Notað í ýmsar kökur. EGGJAHVÍTUKREM 2 eggjahvítur 1% bolli sykur örlítið salt Vi tsk. kremotartari % bolli vatn 1 tsk. vanilla Setjið allt efnið í skál og þeytið yfir sjóðandi vatni, þar til kremið er stíft. Þetta krem má setja bæði milli laga og ofan á ýmsar tertur. S. A. 22 HÚSrREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.