Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 19

Húsfreyjan - 01.03.1955, Blaðsíða 19
Halldóra Eggartadóttir: RYKSUGAN OG NOTKUN HENNAR Mikill vinnuléttir er að eiga ryksugu, því að hún sparar bæði tíma og vinnu- orku húsmóðurinnar. Hún eykur á hrein- lætið, þar sem hún sogar allt ryk í burtu, og engin hætta er á, að það flytjist til eins og stundum getur komið fyrir, þeg- ar verið er að sópa eða þurrka af. Það fer auk þess betur með teppin og hús- gögnin að hreinsa þau með ryksugunni, heldur en að berja þau og bursta. Það borgar sig því að eiga ryksugu, jafnvel þó að heimilið sé lítið — og hún er blátt áfram nauðsynleg þar sem meira eða minna er af teppum og mottum á gólfum. Ryksugan á að vera þannig byggð, að loftstraumurinn sé hreinn, þegar hann fer í gegnum mótorinn. Rykpokinn á því að vera fyrir framan hann. Þegar þið kaupið ryksugu ættuð þið að athuga, hve margir loftlítrar fara í gegnum hana á mínútu. Því hærri sem sú tala er, því betur vinnur ryksugan. Berið svo sam- an mínútulítrafjöldann á ryksugum með sama verði og kaupið þá, sem hefur hæstu töluna. Það borgar sig betur að kaupa stóra ryksugu en litla, því að mjög lítill mis- munur er á rafmagnseyðslunni, og vinnan gengur miklu fljótar. Varizt að kaupa notaða ryksugu nema fagmaður hafi litið á hana fyrst. Ryksugan er dýrt tæki, það er því áríð- andi, að vel sé farið með hana, og að sem mest gagn verði að henni. Þess vegna þarf að venja sig á frá byrjun að vinna rétt með henni. Það er áríðandi að nota rétt munn- Belgryksuga. stykki við vinnuna. Reglan er sú, að málmmunnstykki eru notuð á mjúka hluti, en burstamunnstykki á harða. Stóru munnstykkin eru notuð á gólf og teppi, litlu munnstykkin á húsgögn og dýnur. Þegar sogað er með málmmunnstykkinu á að láta það hallast ofurlítið, loftstraum- urinn verður þá sterkari og ryksugan vinnur betur. Færið munnstykkið kerfis- bundið fram og aftur, svo að ekkert ryk verði eftir. Hreyfið munnstykkið hægt, annars nær ryksugan ekki upp ryk- inu. Gætið þess, að sogrörið sé hæfilega langt, svo að vinnustellingin verði rétt. Ágætt er að ryksuga gólfin. Til þess að ná ryki undan lágum húsgögnum, sem erfitt er að færa úr stað, er ágætt að setja hnélið á sogrörið, en hann fylgir sumum ryksugum. Annars er hægt að nota rörmunnstykkið. Á mjúk teppi er bezt að nota málmmunnstykki. Færið munnstykkið eftir því, sem lóin liggur, en ekki á mótí henni eða á hlið. Þá vilja lóhárin flækjast saman og sandkom og önnur óhreinindi geta festzt í þeim. Það eykur slitið, en auk þess verður teppið með þessu móti úfið og gljálaust. Á stoppuð húsgögn er notað minna málmmunnstykkið og rörmunnstykkið til þess að fara niður á milli stoppsins, en idsiiimK 19

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.