Húsfreyjan - 01.03.1955, Qupperneq 9
í Akraneskirkju vorið 1954.
FERMINGARKYRTLAR
Mörg kvenfélög munu hafa hug á því
að stuðla að því af fremsta megni, að
upp verði tekin sú venja að öll börn séu
skrýdd hvítum kyrtlum á meðan ferm-
ing þeirra fer fram, eins og þegar var fram-
kvæmt í fyrravor á Akureyri, Akranesi
og í Vestmannaeyjum. Hins vegar munu
margar konur telja sig lítt færar til þess
að beita sér ákveðið fyrir framkvæmd
þessari í sínum söfnuði vegna ókunnug-
leika á ýmsu, er mál þetta varðar, svo
sem efnisval, kostnað o. fl. Fyrir því hef-
ur ,,Húsfreyjan“ aflað sér nokkurra upp-
lýsinga um þetta hjá sóknarprestinum
á Akranesi, sr. Jóni M. Guðjónssyni. Birt-
ist hér nokkuð af því helzta, er um var
rætt við prestinn, ef vera kynni, að það
gæti orðið lesendum blaðsins til nokk-
urrar leiðbeiningar.
Efni þau, sem notuð hafa verið eru
,,popilin“ eða ,,trickotine“. Eru efni þessi
ekki mjög dýr, en talin góð og áferðar-
falleg. Talið er, að 5 metra þurfi að með-
altali í hvern kyrtil, en hentugt þykir
að hafa fjórar stærðir, nr. 38, 40, 42 og
44. Eru þá millistærðirnar tvær miðaðar
við meðalstór börn á fermingaraldri, en
nr. 38 við þau, sem ekki geta talist í
meðallagi stór og nr. 44 aftur við þau
börn, sem hafa náð meira en meðalþroska.
Þarf vitanlega mest af millistærðunum
tveim. Verð hvers kyrtils mun hafa orðið
150 krónur, þar af 75 krónur saumalaun.
Myndir þær, er fylgja greinarkorni
þessu, sýna glöggt, hve klæðilegir kyrtl-
arnir eru bæði á piltum og stúlkum og
ættu því að ýta undir þá hreyfingu, sem
þegar er vöknuð víðs vegar á landinu, að
hCsfreyjan 9