Húsfreyjan - 01.03.1955, Side 10

Húsfreyjan - 01.03.1955, Side 10
fermingarkyrlar verði hvarvetna notað- ir hér á landi áður en mörg ár líða. Ligg- ur í augum uppi, að nokkur sparnaður er þetta fyrir aðstandendur barnanna, ekki sízt stúlkna, því að fermingarkjól- ar þeirra hafa oft verið óhæfilega dýrir fyrir efnalitla foreldra. Annað vegur þó ekki minna í augum fjölda manna, þó að til kunni að vera þeir, er telja þá hlið málsins ekki mikils verða. Sjálf ferm- ingarathöfnin hlýtur að verða hátíðlegri en ella, þegar öll ungmennin, sem fermd eru hverju sinni, bera þennan látlausa, hvíta skrúða. Þetta hlýtur, meðal ann- ars, að gera alla viðstadda minnuga hins sígilda sannleika, er því miður vill stund- um gleymast, að frammi fyrir Drottni eru allir jafnir, sá snauði jafn þeim auð- uga, sá lítilmótlegi jafn þeim háttsetta. Kristjana Haraldsdóttir frá Austur-Görðum. F. 18. ágúst 1898 — D. 19. marz 1954 1 Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu er bær sá, er Austur-Garðar heitir. Má heita, að bær þessi liggi um miðja sveit og rétt í þjóðbraut. Þar bjuggu um síð- ustu aldamót og fyrstu tugi þessarar ald- ar hjónin Sigríður Sigfúsdóttir og Har- aldur Ásmundsson. 18. dag ágústmánað- ar árið 1898 fæddist þeim hjónum dóttir, er í skírninni hlaut nafnið Kristjana. 1 Austur-Görðum ólst hún svo upp í fjöl- mennum systkinahóp mannvænlegra barna. Hirðusemi úti og inni, hjálpfýsi og greiðasemi við alla, er eftir leituðu, ein- kenndi þetta heimili. Ekki voru þá lagðir vegir um þvera sveit og endilanga eins og nú, en troðnar voru slóðir allra átta heim að Austur-Görðum. Margir leituðu þar ýmis konar fyrirgreiðslu, meðal ann- ars var oft 'leitað til húsfreyjunnar með saumaskap og prjón, og ekki voru þær gamlar að árum elztu systurnar, er þær gátu veitt móður sinni ýmis konar að- stoð. Var Kristjana elzt þeirra og fór því eigi varhluta að þessu. Ung kenndi Kristjana lasleika í baki, og lá þá lengi rúmföst, fyrst heima, og síðar um það bil ár á sjúkrahúsi Akur- eyrar. Þar fékk hún tækifæri, — eftir að fótaferð var fengin — til að kynna sér hjúkrun, ganga á milli sjúklinganna, veita þeim hjálp, hressa og gleðja. Varð þetta sterkur þáttur í lífi henn- ar upp frá því, enda var hún oft fengin til að annast um sjúklinga í heimahús- um og fylgja þeim sem flytja þurfti burtu. Lengsum ævi sinnar var þó Kristjana sjálf heilsuveil og þurfti oftar en að þessu sinni að dvelja á sjúkrahúsi. 10 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.