Húsfreyjan - 01.01.1960, Síða 4
Frú
Ragnhildur Pétursdóttir
áttræð
MIÐVIKUDAGINN 10. febrúar síðastlið-
inn átti frú Ragnhildur Pétursdóttir frá
Engey áttræðisafmæli. Ef rætt væri um
sögu húsmæðrafræðslunnar á þessari öld,
kæmi engin kona oftar við sögu en hún
og engin er sú kona, sem fleiri og styrk-
ari stoðum hafa skotið undir þau lands-
samtök kvenna, sem nefnast Kvenfélaga-
samband íslands en einmitt hún. Virðist
ekki úr vegi, að hér í blaði K.I. sé við
þessi tímamót í ævi þessarar merku konu,
vikið að nokkru af því helzta af störfum
hennar í þágu þessara mála, sem að vísu
eru ærið samanslungin.
Hún var alin upp á stóru myndarheim-
ili, þar sem bæði var stundaður búskap-
ur og útróðrar. Heimilið var íslenzkt í
þess orðs beztu merkingu. Þaðan munu
henni vera runnin ræktarsemin við öll
þjóðleg verðmæti og ást á ræktun og
gróðri landsins. Á æskuárum fór hún til
útlanda til þess að afla sér þekkingar í
húsmæðrafræðum. Að námi loknu hóf
hún umferðakennslu í þeim fræðum á
vegum Búnaðarfélags Islands og mun vera
fyrsta konan, er hafði þá kennslu á hendi
sunnanlands. Hún var ung og hraust og
lét eigi erfiðleikana sér fyrir brjósti
brenna. Hef ég heyrt hana minnast með
ánægju þessara ferðalaga og kynnum við
mætar sveitakonur, en hitt mun hún síð-
ur hafa í hámælum, hversu örðug ferða-
lögin voru tíðum, tæki fá og léleg við
kennsluna og húsakostur allt annað en
þægilegur.
Þegar stofnuð var hússtjórnardeild við
Kvennaskóla Reykjavíkur, tók hún að sér
forstöðu þeirrar deildar. En þar starfaði
hún aðeins í tvö ár, giftist skömmu síðar
Halldóri skipstjóra Þorsteinssyni og stofn-
aði eigið heimili. Lét hún þá af kennslu,
en af ýmsu má marka, að húsmæðra-
fræðslan hefur jafnan verið henni ofar-
lega í huga. Á næstu árum gerðist fátt
nýtt á því sviði. Búnaðarfélag Islands hélt
uppteknum hætti að fá sérfróðar konur
til þess að annast umferðakennslu í sveit-
um landsins, en húsmæðraskólum fjölg-
aði lítt._
Nokkru eftir 1920 gekkst frú Briet
Bjarnhéðinsdóttir fyrir því, að halda
landsfundi kvenna, án þess þó að nokkur
skipulagður félagsskapur stæði þar á bak
við. Á slíkum landsfundi, sem haldinn
var á Akureyri árið 1926, var frú Ragn-
hildur Pétursdóttir, ásamt tveimur öðr-
um konum kosin í nefnd til þess að ræða
við Búnaðarfél. ísl. um aukin fjárfram-
4
HÚSFREYJAN