Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 6
Húsmæðrakennaraskóli íslands
í JANÚARMÁNUÐI síðastliðnum sátu
stjórn Kvenfélagasambands Islands,
stjórn Minningarsjóðs Elínar Briem,
nefnd sú, er annast Minningarsjóð Þor-
gerðar Þorvarðardóttur, ásamt skóla-
nefnd og nokkrum fleiri konum, boð í
hinum nýju húsakynnum Húsmæðra-
kennaraskóla íslands við Háuhlíð 9 í
Reykjavík.
Helga Sigurðardóttir, skólastjóri, bauð
gesti velkomna og þakkaði sjóðum þeim,
sem skólann hafa styrkt, velvild og rausn.
Úr Minningarsjóði Elínar Briem hefur
einum húsmæðrakennara verið veittur 5
þúsund króna styrkur til framhaldsnáms,
og þar að auki hefur hann gefið skólanum
málverk og veggskjöld, auk verðlauna-
penings, sem þeim kennara, sem útskrif-
ast hverju sinni með hæsta einkunn, er
veittur. Úr Minningarsjóði Þorgerðar
Þorvarðardóttur á nú að fara að veita
efnilegum nemanda í Húsmæðrakennara-
skólanum styrk til náms þar, eða til fram-
haldsnáms.
Eftir að gestir höfðu notið myndarlegr-
ar máltíðar, sýndi skólastjóri þeim skóla-
húsið, lýsti starfsaðstöðu þar og að síð-
ustu var sýnd kvikmynd frá sumarstarfi
skólans að Laugarvatni.
Húsmæðrakennaraskólinn hafði aðset-
ur í háskólabyggingunni, þar til Háskól-
inn tók sjálfur það húsnæði til afnota.
Féll þá niður kennsla um tveggja ára
skeið vegna húsnæðisskorts, en að þeim
tíma liðnum var skólanum fengið það
hús, sem byggt var sem rektorsbústaður
við væntanlega menntaskólabyggingu,
sem standa átti norðan við öskjuhlíð. Er
hætt var við byggingu skólahússins og
eftirmaður Pálma rektors Hannessonar
6
HÚSFREYJAN