Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 9

Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 9
til þess í fámennum félögum að hafa mikla tilbreytingu, en oftast eitthvað. Eitt sinn skýrði formaður norska sambandsins, frú Alette Engelhart, sem nú er formaður Húsmæðrasambands Norðurlanda, frá því, að hún var á ferð nyrzt norður í Noregi, og hittist svo á, að hún var hjá kvenfélagi hæst uppi í f jallabyggðunum hinn 10. marz. Þetta félag hafði auðvitað ágætt fundarefni þennan hátíðisdag, að fá jafn ágæta konu og frú Engelhart til þess að tala á fundinum, en henni var líka ógleym- anlegt hvað konurnar höfðu gert í til- efni dagsins. Snjór var svo mikill, að það þurfti að grafa löng mann- hæðarhá göng inn að dyrum samkomu- hússins, en inn í veggi þessara snjó- gangna höfðu konurnar grafið litla stalla, þar sem á stóðu logandi kerti. Inni fyrir beið kaffiborðið umhyggju- samlega undirbúið af konum úr f élaginu. Það sem liggur til grundvallar hugs- uninni um ákveðinn dag, sem hátiðis- dag allra kvenna í Húsmæðrasambandi Norðurlanda, er sé minnzt með hátíða- fundi að kvöldinu, er það, að fá konur til þess að sameinast á einum degi um sameiginlega hugsjón og sameiginlegt starf, þannig að hvert það félag, sem heldur fund hinn 10. marz, veit að samtímis eru haldnir hundruð kven- félagsfunda víðs vegar um Norðurlönd með þúsundum kvenna, sem senda hver annarri samstilltar kveðjur yfir loftin blá, þótt hvorki séu send bréf eða símskeyti. Smátt og smátt hefur snar þáttur fundanna 10. marz orðið sá að auka gagnkvæm kynni og vináttu meðal norrænna kvenna, og hafa konur oft ýmislegt efni á fundunum í þeim til- gangi. Þess utan hefur Húsmæðrasamband Norðurlanda á síðari árum gengizt fyr- ir því að ritað væri hið svokallaða norræna bréf, og er það sent félögum innan samtakanna. Það kemur í hlut landanna eftir röð, að sjá um að láta semja norræna bréfið og hefur ísland séð um það fyrir nokkrum árum. Bréf- ið er svo sent heim i landssamböndin, sem senda það til félaga sinna í þeim tilgangi, að það sé lesið upp á hátíðar- fundinum 10. marz. Strengilega er séð um það, að bréfið sé á fárra vitorði fyrr en þann dag. Talið er af þeim, sem til þekkja, að hátiðarfundurinn á hverjum stað, nái hámarki sínu, þegar norræna bréfið er opnað og lesið. Þetta er venjulega ein- hvers konar hugvekja, ætluð öllum þeim, sem í samtökunum eru, til sam- eiginlegrar umhugsunar, og það sem gerir þetta sérlega áhrifamikið er það, að konurnar sameinast allar, þótt hver sé á sínum stað, um bréf það, sem þeim berst af tilefni dagsins. Nú var aftur komin röðin að okkur að sjá um bréfið og tók frú Aðalbjörg Sigurðardóttir að sér að rita það. Bréf- ið er nú fyrir alllöngu komið til stjórn- ar Húsmæðrasambands Norðurlanda, en það er ekki heimilt að birta það fyrr en eftir 10. marz, þannig að það kem- ur í júní-hefti Húsfreyjunnar. Óhætt er þó að segja, að konur munu, ef til vill betur en oft áður, finna meining- una með því, að einbeita hugsunum sínum að einu marki, er þær hafa lesið hugvekju frú Aðalbjargar. Hér er ekki gerð nein tillaga um það, að íslenzk kvenfélög geri 10. marz að hátíðisdegi sínum með þeim hætti, sem hér hefur verið lýst, en vissulega er það efni umhugsunarvert, og ekki kannski sízt fyrir okkur, sem þurfum að finna til þess — ekki bara að vita það — að við erum í samtökum, sem ná út fyrir okkar land, þar sem allir vinna að sama markmiði, markmiði skilnings, vináttu og samvinnu. HÚSFREYJAN 9

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.