Húsfreyjan - 01.01.1960, Blaðsíða 15

Húsfreyjan - 01.01.1960, Blaðsíða 15
Óli Valur Hannesson: SKRÚÐGARÐAR Mynd 1. — Mjög fábrot- inn garður, er mœtti víða koma við til sveita. 1. gangstétt, 2. setpláss, '3. grasflöt, 4. beð með fjölæru og sumarblómum, 5. trjákenndur gróður í beðum, 6. limgerði, 7. stakstæð barrtré. Á SÍÐASTLIÐNUM 15—20 árum hafa orðið hér stórstígari framfarir en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. — Fram- kvæmdir á ýmsum sviðum hafa verið skógrækt verði uppteknar í húsmæðra- skólum landsins. Það má ef til vill segja, að þetta mál snerti ekki kvenþjóðina sérstaklega, eða að minnsta kosti siður en þau mál, er ég hef rætt um hér að framan, en sé það satt, sem sagt er, að land án skóga sé land án framtíðar, ber þá ekki okkur, dætrum Fjallkonunnar, að reyna að bæta kyrtil hennar og lita hann grænan á ný? Að lokum þetta: Fyrr á öldum voru konur á íslandi einangraðar í strjálbýlum sveitum landsins, nú hafa þær skyndilega færst nær hver annarri, með bólfestu i borgum og bæjarhverfum. Gera má ráð fyrir því, að komandi ár verði timar félagslegra átaka. Þess vegna þurfa konur nú að læra að starfa saman og nota mátt samstilltra krafta sér sjálf- um til aukins þroska — en þjóð sinni og landi til heilla. óhemju umfangsmiklar; þó munu þær að líkindum hvergi hafa verið jafn örar og áberandi og á vettvangi íbúðarhúsabygg- inga. Um gjörvallt land, jafnt í bæjum sem sveitum, hafa verið reist hin mynd- arlegustu húsakynni, og það í þúsunda- tali. Flestir hafa kappkostað að gera þau sem fullkomnust úr garði, jafnt að utan sem innan. Þótt vart eigi það við um alla, þá gildir það um marga, að þeir hafa ekk- ert til sparað til að afla flestra þeirra innanhúss þæginda, er nútíminn hefur upp á að bjóða. Er fátt annað en gott um slíka viðleitni að segja, svo framarlega sem boginn er ekki spenntur of hátt með tilliti til getu, því óneitanlega fylgir þessu mikill kostnaður. En, þótt mikið hafi áunnizt á þessu tímabili, og mörgum hafi tekizt að ná því marki, að koma sér upp notalegu skjóli, er ekki þar með sagt að öllu sé lokið; enda kemur glögglega í ljós, að svo er ekki, þegar litið er yfir landið. Ennþá á stór fjöldi óstígið síðasta skrefið, sem er ekki hvað veigaminnst, þegar um byggingu íbúðarhúss er að ræða, og getur HÚSFREYJAN 15

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.