Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 17

Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 17
það ekki reynt hér. Hins vegar skal bent á örfáa þætti, sem nauðsynlegt er að hafa til hliðsjónar við undirbúning skipulagn- ingarinnar. — Rétt er að brýna fyrir væntanlegum skrúðgarðseigendum, að nauðsynlegt er fyrir þá að gefa sér góðan tíma til að íhuga, hvernig þeir hugsa sér að haga fyrirkomulaginu í garðinum. Það gagnar lítið að hefjast handa um mótun garðsins, fyrr en einhver niðurstaða um skipulagningu hans er fengin, og hún helzt fest á pappír. Þessu mikilsverða atriði gleymir fjöldinn allur, sem finnur hvöt hjá sér um að láta til skarar skríða með fegrunarstörf. Áhugi þeirra beinist fyrst og fremst að gróðrinum. Sjálft skipulagn- ingaratriðið er látið liggja í léttu rúmi, unz plönturnar hafa verið pantaðar, og svo að segja staðið er með þær í hönd- unum. Vandast þá málið um, hvar kunni að vera bezt að hola þeim niður. Endir- inn er þvi oftast sá, að plöntunum er hnoðað á víð og dreif um alla lóðina, venjulega án minnstu skynsemi í niður- röðun, og oftast til óumræðilegra leiðinda, er fram líða stundir, því þá kemur í flest- um tilfellum í ljós, að lóðin er orðin að einum samfelldum skógarreit, er hylur að mestu húsið og útilokar birtu og yl. Þegar gróðurinn er orðinn stór, tímir enginn að gera þær ráðstafanir, sem lík- legar væru til að bæta eitthvað fyrir- komulagið. Til þess að fyrirbyggja, að eitthvað í þessari mynd eigi sér stað, þurfa garðeig- endur í upphafi að gera sér nokkra grein fyrir því, til hvers þeir ætla sér að nota garðinn, m. ö. o. hvaða hlutverki hann eigi að gegna. Hlutverkin geta verið margvísleg; meg- inatriðin eru þó þau að vera til fegrunar, hvíldar og leikja. Sé garðurinn fyrst og fremst hugsaður til hvíldar og sem leik- völlur, er þess gætt að hafa hann sem einfaldastan í lögun, með tiltölulega tak- mörkuðum gróðri, er miðar fyrst og fremst að því að fyrirbyggja sem mest truflun af völdum umferðar og nágranna. Grasflatir eru látnar vera sem mest ríkj- andi. Slíkir garðar eru yfirleitt ódýrari í byggingu og viðhaldi, og ætti að vera á flestra manna færi að annast umhirðu þeirra í frítímum sínum. Eigi aftur á móti að nota garðinn til ræktunar á sem mest- um og jafnframt fjölbreyttum skraut- gróðri, getur verið um margbreytilega lögun að ræða. Er það að sjálfsögðu nokk- uð háð efnum og óskum, hvernig slíkum görðum yrði háttað; og máski ekki hvað sízt skiptir það máli, hversu mikinn tíma fólk hefur til umráða til að sinna garð- yrkjustörfum, því eindregnir skrautgarð- ar þurfa mikla umhirðu, eigi þeir að sóma sér vel. Staðhættir snerta og mjög fyrirkomu- lag garðbygginga. Með staðháttum er þó ekki alltaf nægilega reiknað, ef dæma skal eftir þeirri tilhneigingu margra til að eftirlíkja í görðum sínum alls konar hugmyndir erlendis frá, án tillits til þess, hvort þær samræmist hérlendu umhverfi, eða ekki. ,,Er ekki um neinn ákveðinn stíl í garða- gerð að ræða?“ vildu sjálfsagt margir spyrja. Jú, ýmsar stílgerðir eru fyrir hendi, hins vegar er sjaldan leitazt við að móta fast eftir þeim. Garðar eru ekki hafðir eins formfastir nú og áður tíðkað- ist. Þær kröfur eru almennt látnar ráða, að þeir séu'óbrotnir að lögun, heppilegir til dvalar og auðveldir í hirðingu. Með hliðsjón af þessum atriðum kem- ur í stórum dráttum til greina annaðhvort að móta garða að meira eða minna leyti óreglulega (landslagsstíll) eða hafa þá reglulega. Garðar í óreglulegum stíl eiga alltaf að laga sig sem eðlilegast eftir svæðinu og umhverfinu. Reglulegir garð- ar aftur á móti, tengjast nánar húsinu og þurfa að vera sem mest í samræmi við það bæði í hlutföllum og mótun. Litlar lóðir getur þó veitzt mjög erfitt að móta í ákveðnum stíl, enda er slíkt ekki aðal- atriðið. Við skipulagningu má almennt ráðleggja fólki að leita aðstoðar faglærðra manna með lausn á sínum vandamálum, ennfremur að teikna, eða láta teikna garðinn sem nákvæmast upp (sjá mynd- HÚSFREYJAN 17

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.