Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Blaðsíða 5
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
51
laflmensku. Nimzowifsch er aflur á móti hægfara og fylgir nýju
skákstefnunni út í ystu æsar.
Allir eru menn þessir heimskunnir fyrir snild sína í samtíma-
og blindskákum og miklu hafa þeir afrekað, en þó að snillingar
sjeu, er samt við raman reip að draga, þar sem er Capablanca.
Enda sýna úrslitin frá sex-meistara skákþinginu í New York yfir-
burði lians. Fimm voru kapparnir, sem hann átti í höggi við, og
sigraði þá alla án þess að tapa nokkurri skák, en tefldi þó 4 skákir
við hvern þeirra.
Skákmenn harma það að vísu, að þeir Dr. Lasker og Bogolju-
bow skyldu vera fjarverandi á þessu þingi, þar eð rneð því hefði
fengist enn nánara styrkleikapróf milli þessara mestu skákmeistara
heimsins. En vjer verðum að líta á það, að síðan 1921 hafa þeir
Capablanca og Lasker teflt saman 3 skákir á meistaraþingum og
hefir hinn fyrnefndi unnið eina, en gert tvö jafntefli. En hvar sem
þeir hafa hitst Capablanca og Bogoljubow, hefir hinn síðarnefndi
beðið ósigur, nerrra einu jafntefli, sem hann náði í London 1924.
Síðustu frjettir herma það, að einvígið milli Capablanca og
Aljechin skuli liafið í september þ. á. í Buenos-Aires.
Til þess að sýna, hvernig vinningar féllu á þessu merka sex-
meistaraþingi í New York, birtist hjer á eftir keppendataflan:
Capablanca Aljechin Nimzowitsch Vidmar Spielmann | Marshall Samtals
Capablanca. ■ - 1 'h'h'h 1 'h 1 'h 'h'h 1 'h 'h'h 1 'h 1 1 'h 1 14
Aljechin .... 0 ’/2 ’/2 ’/2 — 'h 0 1 'h 'h'h'h'h 1 'h'h 1 'I2 1 'h 1 11 'h
Nimzowitsch 0 'll 0 92 'h 1 0 'h — 1 0 0 '/2 1 1 'h'h 1 'h'h 1 IOV2
Vidmar '/2'/2 0 ’/2 'h'h'h'h 0 1 1 '/2 — 'h'h'h'h 'I2 0 1 'h 10
Spielmann .. l/tl/2 0 '/2 0 'h'h 0 0 0 'h'h 'h'h'h'h — 'h'h 1 V2 8
Marshall.... 0 0 */* 0 'h 0 'h 0 0 'h'h o 'h 1 0 'h 'h'/t 0 'h — 6
Keppendatafla þessi mun vera ein hin einkennilegasta, sem
sjest hefir, vegna jafnteflamergðarinnar. Capablanca hefir gert 12,
Aljechin 13, Nimzowitsch 9, Vidmar 14, Spielmann 14, Marshall
10 jafntefli. J. H. H.