Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Blaðsíða 7
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
53
upptök að stofnun þessara skákþinga, setti sjálft um þau Iög og
reglur, sem meðal annars kváðu svo á, að Skákþing íslendinga
skyldi ávalt háð í Reykjavík. Pað hefir og ávalt síðan haft allar
framkvæmdir um þau og tekið á sig allar skyldur gagnvart þeim,
veitt verðlaun þeim, sem hlutskarpastir hafa orðið, og auk þess
veitt skákmeistaratign íslands sigurvegaranum í I. flokki, og á ann-
an hátt borið skyldur og skatta af skákþingunum. En fyrst eflir
að skákþing þessi voru stofnuð, var skáklíf dauft á landi hjer, skák-
fjelög mjög fá eða engin utan Fíeykjavíkur og því fáir skáknienn
til, senr nógu efldir væru til þess að etja kappi við skákmenn höf-
uðstaðarins á þessum þingum. Petta mun aðallega hafa valdið því,
að Skákþing íslendinga í Reykjavík voru lítt sótt af öðrum en
höfuðstaðarbúum.
En síðan hafa tímarnir breyst mikið. Skáklíf hefir glæðst mjög
mikið í landinu, skákfjelög risið á fót, samband stofnað milli skák-
fjelaganna og nokkrir góðir skákmenn komið fram á sjónarsviðið.
En það, sem mestri breytingu hefir valdið, er, að Taflfjelag Reykja-
víkur hefir nú gengið í Skáksamband íslands, og með því afhent
Sambandinu allar framkvæmdir og skyldur um Skákþing íslendinga,
sem það hafði að fornu og nýju. Hefir nú Skáksambandið sett
ný lög og reglur um Skákþing íslendinga.
Petta er því fyrsta Skákþing íslendinga, sem háð er utan Reykja-
víkur, og fyrsta Skákþingið, sem Skáksamband íslands hefir haft
framkvæmdir um.
Skákþing þetta er að ýmsu leyti merkilegt og eftirtektarverðast
þeirra Skákþinga, sem háð hafa verið hjer á landi. í fyrsta lagi er
þetta fjölsóttasta Skákþingið, sem háð hefir verið, með því að það
sóttu 33 keppendur. I öðru lagi sendu 8 skákfjelög víðsvegar að
keppendur á þingið, sem sje: Taflfjelag Reykjavíkur, Skákfjelag Ák-
ureyrar, Hvammstanga, Sauðárkróks, Siglufjarðar, Húsavíkur, Hörg-
dæla og Gagnfræðaskólans á Akureyri. Er þetta því almennasta
þátttakan, sem orðið hefir í Skákþingum hjer. Og í þriðja lagi
sóttu Skákþing þetta margir hinna efldustu skákmanna landsins,
sem kunnir eru, auk þess sem þar komu fram nýir og óþektir skák-
kraftar, sem vert er að veita athygli.
Úrslit Skákþingsins mun fæstum hafa komið á óvart. Eggert
Gilfer er svo þektur skákmaður og hefir sýnt það iðulega, að hann
er tvímælalaust með allra »sterkustu« skákmönnum landsins, að
miklar líkur voru í upphafi fyrir því, að hann mundi verða hlut-