Íþróttablaðið - 01.03.1927, Síða 5

Íþróttablaðið - 01.03.1927, Síða 5
Iþróttablaðið Gefið út af Iþróttasambandi Islands. (Áður „Þróttur“ stofnaður af í. R.) II. árgangur. Marz — Apríl 1927. 3.-4. tölublað. í. S. í. og sambandsfélögin. I sambandi við 15 ára afmæli Iþróttasambands Islands drap eg að eins á samstarfsvöntun milli stjórnar þess og félaganna, sem oft hefir verið nefnd svo að 'eg hefi heyrt, á undanförnum árum. Lofaði eg jafnframt að minnast lítið eitt frekar á það í þessu blaði. Það vil eg nú gera að nokkru. Verður ætíð að hafa orð á þvi, sem ábótavant þykir, þannig að allir hlutaðeigendur heyri það og sjái, ef að bætur eiga að fást. Það er ekki nóg að örfáir einstakl- ingar tali um það að eins sín á milli, þessir hér og aðrir þar. Meðal þess, sem eg hef heyrt sambandsstjórn- inni ámælt fyrir oft og tíðum, er það, að hún væri nær eingöngu fyrir Reykjavík og þó mest knatt- spyrnufélögin. Að hún í starfi sínu hafi sárlítið gert fyrir félög út um land og þó minst fyrir sveitafélögin. Að hún væri nærsýn og jafnvel ein- sýn um íþróttamálin og vantaði það fjör og fram- kvæmdasemi, sem með þyrfti í hennar verkahring. Nú skulum við segja að alt þetta hafi við ein- hver rök að styðjast, og gá svo að því hvort sambandsstjórnimum, sem setið hafa við stýrið á hverju ári, séu gallar þessir beinlínis að kenna eða hvort félögin eigi ekki einhverja meiri og minni sök á því sjálf. Það er þrautreynt, og hlýtur hver maður að kannast við það, sem einhverntíma hefir í það komist, að hversu góð sem ein félagsstjórn er í sjálfu sér, þá fær hún ein aldrei gert félagið vold- ugt og sterkt eða borið öll þess störf og fram- kvæmdir. Félagsmennirnir verða eitthvað að leggja af mörkum líka, að minsta kosti að sýna áhuga og fylgi við málefni félagsins. Þeir verða að vera sá bakhjarl, sem stjórnin má reiða sig á að ekki láti undan síga, þegar hún þarf að taka á. Og þó að hún sé í rauninni mjög starfshæf og áhugasöm, þá má ofgera henni engu síður en fjörhestinum. Hann verður ekki látinn hlaupa endalaust, og hún getur ekki borið félagið ein uppi alt af, þótt hún um tíma geti kippt því nokkuð áfram. Þannig hygg eg að sambandsfélög I. S. I. eigi alt of mörg allmikla sök sjálf á þeim göllum, sem þau hafa þóttst finna á sambandsstjórninni. Tengiböndin milli stjórnarinnar og félaganna, sem dreifð eru um alt land, eru ekki mörg. Því er nauðsynlegt að þau séu alt af í standi og þeim sé vel viðhaldið. Sambandsstjórnin getur ekki og á ekki að annast viðhaldið eins. Félögin eiga sjálf að gera það líka og það að miklum meiri hluta. Böndin eru þessi: 1. Skýrslugjöf félaganna til sambandsstjórnarinn- ar og skattgreiðsla. 2. Þátftaka í stjórn sambandsins, störfum og á- kvörðunum, með því að senda — eða láta mæta fyrir sína hönd — fulltrúa á aðalfundi sambandsins. 3. Blað sambandsins, nú íþróttablaðið — áður Þróttur, þótt hann væri eign einstaks félags — sem öll félögin eiga beinlínis að útbreiða eftir föngum og sjá um að borgi sig sem bezt, svo að það geti gert sem mest gagn og orðið sem allra fullkomnast, en þó ódýrt. En það veltur alt á útbreiðslunni. 4. Erindreki, sannur, fjölhæfur íþróttamaður eða íþróttakennari, sem sambandið gæti látið ferðast um á milli félaganna, til að aðstoða þau, kenna þeim, leiðbeina og fræða bæði í orði og verki, þetta árið í þessum landshluta og hitt árið í hinum. Hvernig hafa nú sambandsfélög í. S. I. lang-

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.