Íþróttablaðið - 01.03.1927, Síða 14

Íþróttablaðið - 01.03.1927, Síða 14
26 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 12 ára sýningarafmæli og alt af verið með í öllum' eldri Iwenna fimleikasýningum hér. Þær voru þá, er þær byrjuðu, í Fimleikaflohki U. M. F. Iðunn, sem lengi starfaði hér í bæ. En þegar hann lagð- ist niður og í. R. hafði stofnað kvennadeild, gengu þær í í. R. Hafa þær verið þar síðan og sótt svo vel, að t. d. hefir önnur komið á hverja einustu æfingu síðan hún kom í félagið og hin að eins mist Qyöa og Sigríður. sárfáar úr. Hafa flestar — og allar — stúlkurnar, sem með þeim hafa verið, gugnað fyr, ofmargar af litlum eða engum ástæðum. Sér ekki á áhuga þessara stúlkna, útliti, hreifingum eða þreki, að þær vinna erfiðisvinnu alla daga. Hér er nú mynd af þessum stúlkum, úr afmælis- blaði í. R. Metaskrá fyrir öll norðurlönd og heimsmet í þeim íþróttum, sem hér eru á skrá, birtist að forfallalausu í næsta blaði. Sundhallarmáliö. Eins og getið var um í síðasta blaði hélt stjórn í. S. í. almennan fund íþróttamanna á afmæli Sam- bandsins 28. janúar. Fundurinn var haldinn í Iðnó og hófst kl. 9,15 síðd. Setti forseti í. S. I. fundinn. Mintist hann á starfsemi Sambandsins á liðnum 15 árum og þann stuðning, sem Alþingi, bæjarstjórn Rvk. og ein- stakir málsmetandi menn hefðu veitt Sambandinu og íþróttamálunum á þessum árum. Kvaddi hann þá fyrverandi forseta I. S. I., hr. Axel V. Tulinius, til fundarstjórnar, en hann tilnefndi fyrv. ritara I. R., Sigurstein Magnússon, sem fundarritara. Verkefni fundarins var: »Umræður um sundhöll í Reykjavík«, og tók þar fyrstur til máls Ben. G. Waage, forseti I. S. I. Rakti hann aðal- drætti þess, sem gert hefir verið hingað til til efl- ingar sundkunnáttu hér á landi bæði af hálfu stjórnarvalda og einstakra manna. Meðal þess mint- ist hann á tillögu mentamálanefndar efri deildar Alþingis 1924 um undirbúning til sundhallarbygg- ingar í Rvk, sem þar var samþykt. Þakkaði hann Jónasi alþm. Jónssyni fyrir afskifti hans af þessu máli. Þá nefndi hann heimildarlögin fyrir sveitar- stjórnir til að skylda unglinga til sundnáms, er samþykt voru á síðasta Alþingi, 1925, og Jóh. Jósefsson, alþ. bar fram. Þá heimild hafa Vest- mannaeyingar nú notfært sér, fyrstir allra. Nefndi hann sundhallir í öðruni löndum, mintist sundkenn- ara hér og óskaði þess loksins að Reykjavík mætti eignast sundhöll sem fyrst, og áreiðanlega fyrir hátíðahöldin 1930. Loks las hann upp eftirfarandi bréf frá Jóni Þorlákssyni forsætisráðherra: »Um leið og eg þakka fyrir vinsamlegt boð stjórnar íþróttasambands Islands, á fundinn í Iðnó í kvöld, sem mér þykir mjög Ieitt að geta ekki þegið, bið eg yður að flytja fundinum kveðju mína og beztu óskir frá mér um góðan framgang hins mikilvæga menningarmáls, sem fyrir fundinum liggur*. Knud Zimsen, borgarstjóri talaði næst. Lýsti við- horfi sundhallarmálsins hér í Rvk um síðustu alda- mót, öllum þeim umbótum sem gerðar hafa verið síðan og öllu því, sem honum hefir dottið í hug og hugsað því máli til gagns og eflingar. Kvað ógerning, að skylda börn og unglinga til sundnáms

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.