Reykvíkingur - 26.07.1928, Side 12

Reykvíkingur - 26.07.1928, Side 12
332 REYKVIKINGUR Leonardo da Vinci. Á meðal lista- og vísinda- manna ítalska endurreisnartíma- bilsins (Renaiszance) koma fram á sjónarsviðið mjög fjölhæfir menn, sem mætti kalla, ef til vill, alhliða. Þó gnæfir hér einn mað- ur upp úr, en það er Leonardo da Vinci (1442—1519). Hann er fæddur í Vinci í Toz- cana, eins og nafn hans bendir á. Hann iærði hjá málaranum og rnyndhöggvaranum Verrocchio, og frá þeim tíma eru fyrstu lista- verk hans. Hann var í Milano hjá harðstjóranum Ludovioo Sforza il Moro (hinn svarti) ár- in 1483—99. Þar fékst hann við málara-, myndhöggvara- og bygg- ingaT-list og aðalverk hans frá þeim tímum er likneski af föður Sforza, sem hefir þó aldrei verið mótað í eir. Þegar Ludovioo Sforza var rek- inn frá Milano af Frökkum, fór Leonardo da Vinci til Veneziu. Árin 1502—3 var hann verk- fræðingur hjá misyndismanninum alkunna Cesare Borgia og fékst þá aðallega við skipulagslist, en fór þá til Firenze og þar málaði hann hin frægu málverk sín „Mona Liza“ og „Naðverjann“. Síðan gekk Vinci í þjónustu Lúð- viks XII. og fór 15,16 með Franz I. til Frakklands, en þar dvaldi hann til æfiloka (1519). Af líkneskjum L. da Vinci er ekkert við líði, svo menn viti, en aftur á móti eru til margar framúrskarandi góðar krítar- og penná-teifcriingár, fyrir utari hin frægu málverk hans. Leonardo var ekki einungis málari og myndhöggvari, en það eitt hefði þó nægt til þess að skipa honum á bekk með Ru- bens og Michelangelo, heldur skaraði hann langt fram úr sinini samtíð sem byggingameistari, stjórnfr., verkfræðingur, stærð- fræðingur, jarðfræðingur og skáld á bundið og óbundið mál, en síð- ast en ekki sízt var hann þð hugvltsmaður. Þess má einnig geta, að hann var íþróttamaður með afbrigð- um. Á margan hátt hefir Leonardo órað fyrir uppfyndingum síðari tíma. Hann er fyrsti maður, svo menn viti, sem hefur gert sjálfstæðar at- huganir viðvíkjandi jarðfræði; hann bendir á hljóðbylgjukenn- inguna og talar fyrstur nianna um blóðrás manna og dýra, seni Harvey finnur 100 árum síðar. Leonardo reyndi að búa til flug' vélar og skip, sem hreyfðust með skrúfu. Má því með sanni segja, uð

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.