Vera - 01.04.1986, Blaðsíða 12

Vera - 01.04.1986, Blaðsíða 12
Hugsa stelpur Kosningarétturinn hefur nú verið færður niður í 18 ár og hefur hver sína skoðun á því máli. En hvað sem því líður þá er það staðreynd að í komandi kosningum bætast við 8.500 nýir kjósendur, ungt fólk á aldrinum 18—20 ára, en í allt munu nú kjósa í fyrsta sinn um 25 þúsund einstakling- ar. En eru 18 ára ungmenni búin að mynda sér skoðun á þjóðmálum og tilbúin til að taka afstöðu til pólitískra val- kosta? Það er nú það. Við hringborðið sitja fjóra stúlkur sem eiga það sameiginlegt að ganga í fyrsta skipti að kjörborðinu i vor. Það eru þær Anna María, 23 ára einstæð móðir sem býr í leiguhúsnæði og vinnur við skrifstofustörf, Díana, 18 ára, nemandi í Versló og býr hjá mömmu sinni, Helga Guðrún, 20 ára stúdent, leigir íbúð með vinkonu sinni og vinnur í bókabúð og Júlía, 18 ára nemandi í Fjölbraut við Ármúla, leigir lítið risherbergi en á líka samastað hjá foreldrum sínum. Júlía: Það er í sjálfu sér allt í lagi að fá að kjósa 18 ára, sérstak- lega ef maður hefur einhvern pólitískan áhuga, en ég held að 18 ára krakkar hafi varla myndað sér skoðun, hvað þá að þau geti vegið og metið. Anna: Maður má ekki gleyma því að krakkar eru svo mótaðir af foreldrum sínum, pólitískum skoðunum foreldra sinna. Þau kjósa eins og foreldrarnir eða akkúrat öfugt við foreldrana ef þau eru þannig stemmd. Helga: Það er líka alltof litið gert af því að kynna stefnu og val- kosti fyrir þessum hópi sem er að fara að kjósa í fyrsta skipti. Díana: Það er ekkert gert. Þessir flokkar ættu að koma í skól- ana og á vinnustaði þar sem mikið er af ungu fólki og kynna fyrir því afstöðu sína í pólitík. Helga: Það eru bara blöðin og sjónvarpið. Anna: Já, og maður fær frekar neikvæða skoðun út frá því. Ég persónulega hef kannski ákveðna pólitíska skoðun án þess að hún rekist vel í flokki. Ég hallast að því að það sé kannski lítill mun- ur á helstu valkostunum og ef maður lítur á þá út frá persónuleg- um hagsmunum þá skiptir ekki nokkru máli hvaða flokk maður kýs. Helga: Það er öðru vísi í sveitarstjórnarkosningum úti á landi, meira persónulegt. Þar er bara kosið um fólk en flokkarnir skipa ekki svo miklu máli. Manni getur líkað vel við stefnu eins flokks, en einhverra hluta vegna líkar manni kannski ekki við þá persónu sem í framboði er fyrir þennan flokk. »• Díana, 18 ára, nemandi í Versló V » Helga Guörún, 20 ára, vinnur í bókabúö 12

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.