Vera - 01.04.1986, Page 27

Vera - 01.04.1986, Page 27
í skýrslu menntamálaráðherratil Alþingis 1978um grunnskóla- lögin, eru á bls. 10 dregin saman helstu meginatriði grunnskóla- taganna. Þar stendur m.a. orðrétt: ,,Lögð er áhersla á heimanakstursskóla þar sem þvi verður við komið sakir veðurfars, vegakerfis og vegalengda." Og enn- fremur: ,,Gert er ráð fyrir útibúum frá aðalskólum fyrir yngstu börnin, þannig að þau séu iþeirrinálægð við heimilisin að unnt sé að koma við heimanakstri." Þessi lög voru sett 1974, síðan eru 11 ár og hvernig hefur fram- kvaemd orðið? A öllu Vesturlandi er aðeins eitt útibú fyrir yngstu börnin. Þar eru allir aðiljar mjög ánægðir með það fyrirkomulag, enda kostirn- lr augljósir. í þeirri sveit hafðist þetta i gegn fyrir mikla samstöðu heimafólks, þar sem allir sem einn maður skrifuðu undir. Verður kannski slíkt og þvílíkt að gerast í hverri einustu sveit, að framfylgja þessum ágætu lögum, hvar stendur hnífurinn í kúnni? Meö hagsmuni barna og foreldra í huga teljum við að þau eigi rétt á að vera hjá foreldrum sínum svo lengi sem kostur er. Hér er um að ræða börn sem í flestum tilfellum hafa lítið sem ekkert dvalið annars staðar en heima, t.d. ekki á leikskólum og dag- heimilum, ekki einu sinni á róló eins og flest þéttbýlisbörn. Því verða viðbrigðin geysileg. Hugsum okkur bara 6 til 7 ára barn sem er að fara að heiman frá pabba og mömmu í fyrsta sinn á ævinni. Þetta barn kemur inn í stóran hóp barna sem flest eru eldri en það sjálft, allt upp í 16—17 ára slöttólfa. Lætin eru óskapleg, miðaðvið rólegt fjölskyldulíf og barnið hef- ur aldrei kynnst neinu slíku og þekkir sennilega ekkert þá sem ólátunum valda. Eðlileg fyrstu viðbrögð hljóta því að verða hræðsla við það sem koma skal og hvert getur barnið leitað með ótta sinn? Það þekkir ekkert starfsfólk skólans. Um kvöldið á barnið svo að sofa í ókunnu herbergi með þrem öðrum börnum (stundum eldri börnum sem eru með yfirgang). Kannski er sums staðar í skólum kona sem les fyrir litlu krakkana á kvöldin, segir sögu eða les bænir með þeim og klappar á litlu kollana áður en þau fara að sofa o.þ.h., en því miður, það er ekki nema sums staðar. Svo er vistunum læst, enginn fullorðinn þar lengur, bara tugir krakka á öllum aldri! Það var mikil umræða í vetur um grimmd eldri barna við þau yngri á leikvöllum í Reykjavík þá stuttu stund, sem er milli kennslustunda í skólunum þar. Hvernig er þá mórallinn í heima- vistarskólunum þar sem börnin þurf að umbera hvert annað fimm sólahringa vikunnar. Þau komast aldrei út úr hópnum, hvergi er afdrep þar sem þau geta verið ein utan við skarkalann sem skól- um og heimavistum hlýtur alltaf að fylgja. Við mæður þekkjum vel þegar börnin okkar koma heim á föstudögum, alveg örþreytt, oft- ast fara þau beint upp í rúm að leggja sig og eru svo að ná sér yfir helgina. Oft verða þau öryggislaus og kvíðin, nokkuð sem mjög erfitt getur verið að losna við og það getur haft slæm áhrif áskóla- göngu þeirra og líf svo árum skiptir. En hvað er þá helst til ráða? Við teljum skólaselin vera bestu lausnina í þeim sveitum sem heimanakstur kemur ekki til greina. Þar læra börnin að umgang- ast önnur börn og sá hópur sem er saman í skólaseli stendur gjarnan saman þegar í skólann kemur. Það er líka mikill munur á hvað börn eru orðin þroskaðri og betur undir það búin að fara að heiman 10 ára gömul en 3—4 árum fyrr. Sjálfsagt þykir einhverjum þetta afturför til þeirra tíma þegar farkennsla var algeng í sveitunum í gamla daga — en var það i rauninni svo slæmt? Við sem munum þessa gömlu sveitaskóla vitum að tíminn var vel nýttur, og nú finnst mér með ólíkindum hvað börn lærðu mikið þann stutta tíma sem skóli var oft starf- ræktur enda var „skólaleiði" víst svo til óþekkt fyrirbrigði í þá tíð. Það eru örugglega allflestir, bæði börnin og foreldrarnir, sem finnst það of snemmt að krakkar fari að heiman 10 ára gömul, hvað þá fyrr, og komi úr því eins og gestir heim, aðeins um helgar allan veturinn. Núverandi ástand þar sem eingöngu er heimavist, minnir einna helst á fráfærurnar í gamla daga, nema hvað nú eiga í hlut foreldr- ar og börn, en ekki sauðfé. Þetta er mikið réttlætismál og við ættum öll að geta lagt þessu lið meðgóðrisamvisku. Viðsem búum í dreifbýlinu stöndum mun lakar að vigi hvað margt varðar, en það sem hægt er að bæta verðum við sjálf að hafa frumkvæði að og standa saman um hlut- ina. Við vitum af gamalli reynslu að ef VIÐ gerum það ekki verður varla nokkur annar til þess. Það er orðin svo rótgróin venja í þessu þjóðfélagi að sveitafólk sitji á hakanum a.m.k. hvað alla þjónustu varðar, að erfitt verður að fá rönd við reist. En við megum ekki láta deigann síga. Það er svo sannarlega tími til kominn að gera eitt- hvað raunhæft í þessum málum. Svava Guðmundsdóttir Sigríður Pétursdóttir 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.