Vera - 01.04.1986, Side 34

Vera - 01.04.1986, Side 34
,,Prinsarnir“ rumska Á báöum fundum borgarstjórnar í mars hafa síöan farið fram umræöur um endurmat á störfum kvenna. Á fyrri fundinum hóf ég umræöuna og vakti athygli borg- arfulltrúa á því aö nú lægju talningarnar á röðun starfa hjá Starfsmannafélaginu fyrir. Bæði embættismennirn- ir og Starfsmannafélagið væru búin aö telja fjölda karla og kvenna í launafokkunum svo nú ætti aö vera hægt að hefjast handa viö aö koma betra skikki á launamál kvenna. Þaö væri bara einn galli á gjöf Njarðar. Talning- in staöfesti allt það sem viö og fjöldi annarra kvenna heföu verið aö benda á í ræöu og riti aö hér ríkti kyn- bundið launamisrétti. Viö stæöum því enn í sömu spor- um og spurningunni væri enn ósvarað, hvernig borgar- stjórn ætlaöi aö breyta þessu og hvernig Sigurjón, flutn- ingsmaður tillögunnar ætlaöi aö standa að verki? Ég kynnti einnig bréf frá Stjórn Starfsmannafélagsins þar sem segir m.a. „Málið (þ.e. talningin) hefur veriö rætt ístjórn Starfsmannafélagsins, en engin niöurstaða fengist á því, hvernig með skuli fara, en stjórnin væntir þess hinsvegar aö borgaryfirvöld hafi gert einhverjar ráðstafnir um framhald samþykktar borgarstjórnar og óskar eftir aö taka þátt í þeim.“ Svo mörg voru þau orö og segið svo aö verkalýðsfor- ystan sé ekki baráttuglöð og ráösnjöll! Nú Sigurjón tók aö sjálfsögöu aö sér aö svara mér og ég vel aö birta orðréttar tilvitnanir úr ræöu hans. Hún sýndi mér nefnilega aö þessi borgarfulltrúi haföi allt til þessa komist hjá því að lesa, hlusta eða kynna sér ára- langa umræöur um kynbundiö launamisrétti á íslandi. Ég vil þó geta þess aö ég hygg aö hann hafi verið veru* 1 lega illa undir þaö búinn aö fjalla um málið, þó þarna væri til umræöu afrakstur af talningartillögu hans, því ég þóttist verða þess vör aö hann hafði aldrei barið þessa marg um ræddu talningu augum fyrr en á fundin- um. En látum Sigurjón fá oröiö: Viö Sigurjón áttum síöan áfram í nokkrum oröa- hnyppingum, þar sem mér fannst enn aö ekki væri Ijóst hvort hann væri í raun aö tala um endurmat á launum kvenna á grundvelli þess aö verkþættir kvennastarf- anna væru metnir til jafns við verðmestu verkþætti karlastarfanna eins og okkar upphaflega tillaga gerði ráö fyrir. Viö þeirri spurningu komu ekki skírari svör á þessum fundi og ég hugsaði meö mér, þaö er þó ekki til einskis barist ef þessi umræöa hefur leitt til þess að einn af þessum sjálfkjörnu baráttukörlum verkalýösins er aö byrja aö átta sig á því að kynbundið launamisrétti er ekki bara hugarburöur kvenna. Ekki dónalegt, ef Sigurjón Pétursson: Herra forseti. Aðeins örfá orð vegna þessa máls, sem síðasti borgarfulltrúi var að tala um, og þar sem m.a. var beint spurningu til flutnings- manna tillögunnar, sem þessi talning er niðurstaða af, hvað ber að gera í framhaldinu. Ég vil nú vekja athygli á því, að þegar að borgarfulltrúinn spyr, hvað flutnings- menn hafi meint með tillögunni, og að þeir hljóti að geta skýrt það, að þá mætti náttúrlega með sama hætti spyrja, hvað meintu borgarfulltrúar, þegar þeir sam- þykktu hana — hún var samþykkt einróma eins og allir vita. Hins vegar kann ég þvíalltaf velþegar ég er spurður um, hvaða stefnu og skoðun ég hef, þvi ég hef stefnu og skoðun, og veit þess vegna hvers vegna tillögur eru flutt- ar og hvers vegna ég greiði þeim atkvæði, ef ég geri það. Þess vegna kann ég því vel og ætla að svara. Ég vil þó áður en ég geri það vekja athygli á því, að í því eintaki, sem ég heffengið afþessari talningu þá virðistþað ann- að hvort vera mjög gallað eða þá að það er fjöldinn allur af kynlausum verum í starfi hjá Reykjavíkurborg, þannig að ég trúi nú frekar að eintakið sé gallað. Þannig er ekki hægt með auðveldum hætti að telja saman hversu margir einstaklingar af hvoru kyni eru í hverjum launaflokki fyrir sig, þarsem mörg starfsheiti eru nefnd, án þess að sé til- greint hvort kynið gegni því starfi. Það er þó greinilegt af því, sem hér liggur fyrir, að konur eru fjölmennar i lægstu launaflokkunum. íþeim allra lægstu, — erþó mjög mikið af körlum líka. Ég telað það sem verði að gera fyrst, þaðeraðfá þetta plagg rétt, en framhaldið það kom í tillögunni og er sam- þykkt borgarstjórnar núna. í næstu sérkjarasamningum verði gerðar breytingar á röðun í launaflokka á grundvelli niðurstaðna framangreindrar könnunar. Þetta er ekki ályktun eða tillaga frá mér, þetta er samþykkt borgar- stjórnar, þetta er ákvörðun borgarstjórnar, ogþóaðborg- arfulltrúi Guðrún Jónsdóttir tali hér með fyrirlitningartón um þessa tillögu, sem við fluttum í haust, og telji að þar sé eingöngu verið að telja upp aftur og aftur það sem allir vita, eins og hún kallar það, (ég vissi þetta ekki t.d.,) ég er að vita þetta í fyrsta skipti núna, hvernig þessi talning er nákvæmlega í hverjum launaflokki fyrir sig. Ég dreg ekkert í efa að borgarfulltrúinn hafi alltaf vitað það og viti það sennilega alltaf, hvaða breytingar sem kunna að verða, en ég veit hitt — að þessi ályktun, sem var sam- þykkt, jafn ómerkileg og hún var, hún felur það í sér að I næstu sérkjarasmningum hefur borgarstjórn Reykjavik- ur ákveðið og samþykkt og gerði það í haust að breyta röðun í launaflokka á grundvelli þessarar könnunar og þessarar talningar. Það tel ég ekki ómerka samþykkt, þó að borgarfulltrúi Guðrún Jónsdóttir telji það ómerka sam- þykkt. Ég tel hana all merkilega og ég tel aðnú verði auð- vitað að fylgja henni eftir, það verði þeir aðilar að gera, sem telja sig undirmáls í þessari röðun, og það verða borgarfulltrúar að sjálfsögðu að kanna líka, og það er óhjákvæmilegt framhald. Hins vegar á þessu stigi máls, þar sem ekki liggur einu sinni fyrir hver þessi talning er, vegna þess hvað þeir pappírar eru ónákvæmir, sem við höfum í höndum, að þá ætla ég ekki að draga frekari ályktanir af því, sem fram er komið, aðrar heldur en þær, sem ég vildi vekja athygliborgarfulltrúans á, aðþað hefur þegar verið samþykkt íborgarstjórn að gera breytingar á launaflokkum á grundvelli þessarar könnunar. 34

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.