Vera - 01.04.1986, Qupperneq 35
,,prinsarnir“ fara að rumska. Á síðasta borgarstjórnar-
fundi lá svo fyrir eftirfarandi tillaga frá Alþýðubandalag-
inu:
,,í framhaldi af samþykkt borgarstjórnar á tillögu
borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins um sérstakt starfs-
mat (það fólst ekki í fyrri tillögunni, var því bætt inn hér
til að fá betra útlit?) og niðurstöðum könnunar á röðun
í launaflokkasamþykkir borgarstjórn, að þau störf, sem
konur eru fjölmennar í, verði tekin til sérstaks starfs-
mats. Sérstaklega er mikilvægt að endurmeta þau
störf, sem fela í sér umönnun og hjúkrun barna, sjúkra
og aldraöra. Starfskjaranefnd verði falið að vinna starfs-
matið í náinni samvinnu við þau félög jafnt innan sem
utan Starfsmannafélagsins, sem eru að meirihluta skip-
uö konum.“
Ég verð að segja það að ég varð aldeilis stein hissa
þegar ég sá þessa tillögu, þarna var okkar tillaga sem
hafði fengið háðulega meðferð í borgarkerfinu tekin,
hún umskrifuð en þó þannig að hún tók hvergi á spurn-
ingunni um viö hvað átti að meta kvennastörfin og svo
var hún með engum tímamörkum.
Undrun mín átti þó eftir að vaxa þegar Sigurjón Pét-
ursson gerðist flutningsmaður hennar inn í borgarstjórn
og ég hélt satt að segja að ég yrði ekki eldri þegar Páll
Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæöismanna stóð upp og
lýsti því yfir fyrir sína hönd og f lokksins að þetta væri sko
góö tillaga og henni bæri að fagna og samþykkja! Og
það var gert og meira að segja viðaukatillaga frá okkur
um að starfsmatinu verði lokið í síðasta lagi fyrir árslok
1986. Já það getur margt gerst þegar ,,Prinsarnir“
rumska en örugglega vissara að hafa á þeim fullar gæt-
ur þannig að þessi samþykkt færi okkur þó fremur fram
á við í baráttunni en hitt.
Guðrún Jónsdóttir
það er
kaffiö. . .
í LANDSBANKANUM
FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA,
FLORINUR, ESCUDOS OG LIRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATÉKKUM
m
g þá er ekki allt upp talið.
í öllum afgreiðslum Landsbankans
geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust
gengið að gjaldmiðlum allra helstu
viðskiptalanda okkar vísum.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
35