Vera


Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 4

Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 4
HEÐAN OG I 1. tölublaði 1. árgangs af tímaritinu Garbage — eða Rusl — sem gefið er út í Bandaríkj- unum, er sagt frá notkun bandaríkjamanna á einnota pappírsbleijum. Eru nú rúm 20 ár síðan þessar bleijur komu á markað og á þessum tíma hafa þær vissulega létt undir með mörgum foreldrum fyrstu ævi- ár barnsins. En þar með er ekki öll sagan sögð. í dag eyða bandaríkjamenn árlega 3-5 billjónum dollara í þær 18 billj- ónir pappírsbleija sem enda í landfyllingu á hverju ári. í allar þessar bleijur eru notaðar ýms- ar tegundir af plasti sem talið er að taki 300-300 ár að brotna niður. Neyslan og fylgifiskur hennar ruslið verður sífellt áleitnara og erfiðara vandamál að leysa. Það stendur því upp á okkur að gera okkur grein fyrir þeim kostum sem í boði eru. Ýmsir framleiðendur halda því fram að þeirra bleijur eyð- ist í jarðveginum á 2-5 árum og séu þar af leiðandi vinsamlegri umhverfinu en aðrar. í þessum bleijum eru korn sem fram- BETRI NÝTING Á BLEIJUM leidd eru úr maíssterkju sem að því er sagt er draga að sér líf- ræn efni úr landfyllingunni og flýta eyðingu þeirra plastefna sem eru í bleijunum. Engu að síður eru ýmsir sérfræðingar fullir efasemda og segja að það súrefni, sem nauðsynlegt sé til að rusl brotni niður í landfyll- ingum, sé mjög takmarkað og því séu tölur um tveggja til fimm ára rotnunartíma að öll- um líkindum ofmetnar. Það sem skipti máli þegar bleijur eru annars vegar sé betri nýt- ing á þeim og endurnýting. Benda þeir í því sambandi á að betri kostur væri ef bleijurnar væru þannig að sjálft plastið væri nýtt aftur en bleijunni sjálfri sturtað niður. Slíkar bleijur eru ekki á markaðnum í dag en margir aðrir góðir kostir eru til staðar. Fyrirtæki sem heitir Bumkins framleiðir nú bleijur sem eru að öllu leyti eins og einnota bleijurnar nema þær má þvo og þolir nver bleija u.þ.b. 200 þvotta. Þessar bleijur eru fram- leiddar úr vatnsheldu nælon- yfirborði og þykku bómullar- stoppi sem dregur vel í sig raka. í blaðinu Garbage kemur fram að hægt sé að panta þess- ar bleijur með því að hringja í síma 1-800-553-9302. (12 stk. af minni gerðinni kosta 49-95 og sendingakostnaður er S 2.5. 12 stk. af stærri gerð- inni kosta $ 69.95 auk S 4.0 fyrir sendinguna). Þá er sagt frá því í blaðinu að til séu þvottahús sem sendi vikulega heim til fólks hreinar bómull- arbleijur og taki þær óhreinu í staðinn. Ef fólk notfæri sér þessa þjónustu geti það sparað um $ 530 á þeim 30 mánuðum sem bleijutímabilið standi jafnan yfir í lífi barnsins. Mörgum finnst það ókostur við bómullarbleijurnar að þær verða fljótt gegnblautar, t.d. að nóttu til, og þ.a.l. kaldar. f Garbage er á það bent að ef fólk vilji halda börnum sínum þurrum og láta þeim líða vel þá sé þjóðráð að leggja þunnt ull- arstykki inn í bómullarbleij- una næst barninu. Slíkt stykki hleypir í gegnum sig rakanum en heldur húð barnsins þurri. Það má nota með u.þ.b. fimm bleijum áður en það er þvegið. -isg. Veist þú um Kjörbókarþrepin? Afturvirk vaxtahækkun á 16 og 24mánaóa innstæóur. Engu aósíóur er Kjörbókin algjörlega óbundin. Kjörbókin ber háa vexti auk verðtryggingarákvæðis, verðlaunar þá sérstaklega sem eiga lengi inni, og eralgjörlega óbundin. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Þrep Kjörbókarinnar eru afturvirkar vaxtahækkanir reiknaðar á þær innstæður sem hafa legið óhreyfðar í 16 eða 24 mánuði á Kjörbók. Þrepahækkun vaxtanna eru fjárhæðir sem skipta milljónum króna og reiknast nú á höfuðstól þúsunda Kjörbóka daglega.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.