Vera


Vera - 01.04.1990, Side 9

Vera - 01.04.1990, Side 9
ar þar sem ræða skal um unga og gamla, fátæka, bágstadda og sjúka,“ eins og Bríet Bjarnhéðins- dóttir orðaði það árið 1907. Þegar kvennalistarnir liðu und- ir lok fylgdi langt stöðnunartíma- bil þar sem einmitt þessi grund- vallarhugmynd um konur hjálp- aði til að þagga niður x þeim. — Bríet var efst á lista kvenna í kosningunum 1926 en náði ekki kjöri. Þetta voru endalok sjálf- stæðu kvennalistanna þá. Ingi- björg H. Bjarnason sem náði kjöri til Alþingis 1922 af kvennalista gekk seinna til liðs við íhalds- flokkinn og það er enginn vafi á að aðrar konur sem höfðu staðið að framboðunum töldu hana svikara við málstað kvenna. Eftir þetta gerast engar sprengjur í ís- lenskri kvennahreyfingu fyrr en Rauðsokkahreyfingin er stofnuð 1970. Að vísu eru konur að starfi víðs vegar í þjóðfélaginu, í kven- félögum, líknarfélögum, kirkju- félögum, verkalýðsfélögum og kvenfélögum stjórnmálaflokk- anna svo eitthvað sé nefnt. En allt þetta starf fór hljóðlega fram. Þær voru aftur orðnar hinar þöglu konur íslands. I raun var Kvennalistinn stofnað- ur utan um sömu grundvallarhug- myndir um konur og hlutverk þeirra og kvennaframboðin gömlu. Sigríður Dúna er málsvari þessara hugmynda en um leið gagnrýnin á þær. — Ég var til dæmis mjög ósátt við þá ákvörðun Kvennalistans að verðlauna konur sérstaklega fyrir frammistöðu þeirra í því að vera konur, þar á meðal í móðurhlut- verkinu, hinn 19- júní síðastlið- inn. Svona verðlaunaveitingar líkjast aðferðum karla sem sífellt eru að gefa konum einkunnir eða klappa þeim á bakið fyrir að vera eins og konum sæmir. Þarna létu Kvennalistakonur á sér skiljast að hægt væri að vera kona á einhvern sérstakan verðlaunahæfan hátt. Þvx virkar þetta eins og fyrirmæli um hvernig konur eigi að vera. Við eigum ekki að búa til staðal- myndir um konur. Sjálfri detta mér í hug Stakhan- ov-orður Stalíns. Hann verðlaun- aði tíu barna mæður fyrir fram- leiðni í þágu byltingarinnar á sama hátt og kraftakarla í verka- lýðsstétt. Ég spyr Sigríði hvort henni finnist verðlaunaveiting 8 Kvennalistans vera af svipuðum toga. Hún þegir um stund og er greinilega brugðið við samlíking- una. — Ég mundi nú ekki eftir Stalín í þessu samhengi, segir hún og Iætur vera að gefa ítarlegra svar. Og hún heldur áfram: — Kvennaframboðið og Kvennalistinn voru grundvölluð á hugtakinu kvennamenningu. Við vildum vera vettvangur fyrir allar konur, hvernig svo sem þær áður höfðu raðað sér í hinu pólit- íska litrófi og alveg án tillits til þess hvort þær voru menntaðar eða ekki, útivinnandi eða ekki eða yfir höfuð hvernig þær voru. Við vildum koma því til skila að það væri jákvætt að vera kona, að hver kona byggi yfir dýrmætri reynslu og mikilvægt væri að koma henni til skila. Þessar hug- myndir eru jafn mikilvægar x dag og þær voru í upphafi en því mið- ur hefur þetta stundum komið út sem nokkurs konar staðalmynd um konur, forskrift að því hvernig konur eiga að vera. Konur eiga að vera góðar, hagsýnar, hreinlyndar og lausar við prjál. Þw ert að tala um gömlu kven- legu dyggðirnar? — Já. Sömu viðhorfin til kvenna og hafa verið notuð í gegnum aldirnar til að halda þeim niðri, segir Sigríður Dúna. Þetta er hugmyndin um konur sem sið- bætandi afl. En hver mótar þetta siðferði? Þessar hugmyndir um siðferði eru mótaðar af karlaþjóð- félaginu og þjóna vissulega hags- Hildur: Viö í Rauö- sokkahreyfingunni höföum eytt miklu púöri í aö reyna aö afnema goö- sagnirnar um hiö kvenlega eöli - og svo komuð þiö og hélduö aftur ó lofti hinni dyggöum prýddu konu. Ljósmyndir: Anna Fjóla Gísladóttir munum þess. Og þær eru svo not- aðar eins og sleggja á þær konur sem eitthvað eru að æmta. Mér fannst Kvennaframboðið gera kúgun kvenna að dyggð, segi ég og finn að ennþá eimir eftir af gamalli gremju út í Kvennaframboðið. Reynslu- heimur kvenna var hafinn uþþ tilskýjanna ogþeim konum sem hafði tekist aö skaþa sér aðrar viðmiðanir ísínu lífi en viömið- anir eiginkonunnar og móður- innar var að mínu mati útskúf- að úr kvennabaráttunni og lítið var gert úr ávinningum þeirra. Að mínum dómi tók Kvenna- framboðið og seinna Kvenna- listinn undir verstu fordóma karlaþjóðfélagsins gagnvart Rauðsokkahreyfingunni — kon- urnar þar voru ekki eðlilegar konur heldur einhvers konar karlkonur. Við höfðum eytt miklu þúðri í að reyna að af- nema goðsagnirnar um hið kvenlega eðli — og svo komuð þið og hélduð aftur á lofti hinni dyggðum þrýddu konu! — í raun vorum við að halda á lofti hinni frjálsu og ábyrgu konu, segir Sigríður Dúna. Hugmyndin um hina dyggðum prýddu konu er hins vegar svo sterk í umhverf- inu og í okkur sjálfum að þessar tvær — sú frjálsa og sú dyggðuga — runnu fljótlega saman í eitt. Báðar voru andstæðar kven- ímynd Rauðsokkahreyfingarinn- ar og því skerptust línurnar á þennan hátt. Línurnar varð að skerpa til að marka skil í kvenna- baráttunni. Staðan var sú að Rauösokkahreyfingin var ein- angruð og hætt að ná til þorra yiKrmr kvenna. Mörgum okkar fannst ekkert hafa breyst þau ár sem Rauösokkahreyfingin hafði starf- að annað en það að 80% kvenna voru komnar út á vinnumarkað- inn og voru að kikna undan tvö- földu vinnuálagi. Þú átt við þann veruleika ís- lenskra kvenna sem Guðbergur Bergsson lýsti einhvern veginn svona: Konur heimtuðu frelsi og hlutu frelsi frystihiisanna? — Já einmitt. En Rauðsokka- hreyfingin náöi sínum árangri. Hún átti viö mjög ramman reip að draga og olli gífurlegu uppnámi. Hún fékk á sig þau harkalegustu skrif sem um getur. Og það var að sjálfsögðu vegna þess að hug- myndir hennar um konur gengu í berghögg við ríkjandi viðhorf. Ég tel að hvorki Kvennaframboð né Kvennalisti hefði litið dagsins ljós nema vegna þess að Rauðsokka- hreyfingin hafði áður tryggt að þessi mál voru í brennidepli í þjóðfélaginu. Framboð er eins og uppskera. Hinsvegar voru hug- myndir rauðsokka um konur ger- ólíkar þeim sem Kvennaframboð- ið lagði til grundvallar. Rauðsokk- ar lögðu ofuráherslu á konur sem vinnuafl úti í þjóöfélaginu og gerðu lítið úr hlutverki þeirra sem mæðra og húsmæðra. Þau hlut- verk fengu neikvætt gildi og kon- ur sem lögðu jákvætt mat á þessi hlutverk fundu sér ekki vettvang innan Rauðsokkahreyfingarinnar. Þ/i segir í grein sem ég hef lesið eftir þig að rauðsokkar hafi stefnt aðþví að gerast karlar ífé- lagslegum skilningi. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki hvað þú átt við. Að mínum dómi voru rauðsokkar uþþteknir af því að taka á stöðu mœðra — þœrsettu fram kröfur um dagheimi/i, fcvðingarorlof samfelldan skóladag og kröfðust aukmnar samábyrgðar á barnauþþeldi, bœði samábyrgðar foreldra og þjóðfélagsins alls. — Félagslegar fyrirmyndir þeirra voru hinsvegar karlar, full- yröir Sigríður Dúna hiklaust. Þær vildu vera félagslega jafngildar körlum og geta starfað nákvæm- lega eins og þeir og á sama vett- vangi og þeir. Ég tel ekki að þær hafi sett spurningamerki við hvernig þeir karlar voru sem þær vildu líkjast. Ég er þeirrar skoðunar að móðurhlutverkið eða kvenhlut- verkið í sjálfu sér sé alltaf notað gegn konum nema þær hafi raunverulegan möguleika á að velja sér það hlutverk, andœfi ég. Þann möguleika hafa þœr ekki ef önnur hlutverk standa þeim ekki til boða eða ef þeim er refsað fyrir að vera mœður — vera konur. Þessiskilningur ríkti tvímœlalaust innan Rauðsokka- hreyfingarinnar. — Kannski er best að skýra þennan mun með því að segja að Rauðsokkahreyfingin hafi notað sterka stöðu karla sem fyrirmynd, segir Sigríður Dúna, en að Kvennalistinn vilji gera stöðu kvenna eins og hún er sterka. Að konur verði í sterkri stöðu sem konur — af því að þær eru konur. Mér finnst þarna reginmunur á. En það er rétt að þessi ágreining- ur við Rauðsokkahreyfinguna var málaður mjög sterkum litum, ein- Sigríöur Dúna: í raun vorum viö að halda ó lofti hinni frjólsu og ábyrgu konu. Hildur: Ég get tekiö undir þaö að Rauö- sokkahreyfingin hafi oröiö einangruninni aö bráö... Viö sem vorum starfandi fundum þaö kannski ekki því þaö er visst félagslegt skjói í svona hreyfingum. Helduröu aö sama mynd geti blasað viö Kvennalista- konum í dag? Sigríöur Dúna: Hœtfan er alltaf fyrir hendi. Og hér erum viö kannski komnar aö kjarna málsins. faldlega vegna þess að þetta var kúvending frá stefnu Rauðsokka- hreyfingarinnar og það er alltaf sárt þegar ný viðhorf brjótast til fjörsins. Konurnar sem voru virk- ar í Kvenréttindafélaginu og víð- ar fundu til reiði og andúðar í garð Rauðsokkahreyfingarinnar þegar hún var stofnuð alveg á sama hátt og sumar rauðsokkur gagnvart Kvennaframboðinu. Rauðsokkahreyfingin taldi sig vera að boða nýjan sannleik og gerðu lítið úr því starfi sem unnið hafði verið t.d. í Kvenréttindafé- laginu. Eg lítþannig á að áður en Rauð- sokkahreyfingin var stofnuð hafi sú hugmynd verið ríkjandi meðal kvenna að leið þeirra til að bœta stöðu sína og breyta lífs- skilyrðum sínum vœri leið menntunarinnar. Konur áttu að mennta sig og þannig hljóta betri lífsskilyrði. Og svo gerðu konur einmitt það. Þœr fóru í háskóla eða í annað sémám. Nám þeirra varð yfirleitt styttra en karlanna, bömin komu kannski eitt af öðru, margar urðu að seinka sér í námi ogger- ast fyrirvinnur eiginmanna sinna þvíþeirra nám hafði for- gang. Sumar luku námi og fóru út á vinnumarkaðinti til þess eins að uþþgötva að þœr fengu ekki vinnu í samrœmi við menntun sína, að heimilisstörf- in voru jafn mikið á þeirra herð- um einum eftirsem áður, aðþœr fengu ekkisömu laun fyrirsömu vinnu og karlarnir sinntu og að karlar með lélegri menntun gengu fyrir við stöðuhœkkanir. Konumar sem uþþgötvuðu þetta þrátt fyrir að þœr höfðu hlotið menntun og fœmi voru konurnar sem stofnuðu Rauð- sokkahreyfinguna. Þess vegna finnst mér það ofureðlilegt og reyndar nauðsynlegt við þessi sögulegu skilyrði að leggja áherslu á misréttið á vinnu- markaðinum. En ég get tekið undir það með þér að Rauð- sokkahreyfingin hafi orðið ein- angruninni að bráð. Stðustu ár- in var allt starf á fárra herðum og við vorum óttaleg þaþþírs- tígrisdýr. Við sem vorum starf- andi fundum það kannski ekki eins mikið og konurnar fyrir utan því það er visst félagslegt skjól í svona hreyfingum. Held- 9

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.