Vera


Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 21

Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 21
*= 'O “O _g <s> b _o 'O o c c < “Ö c >* E LO :g_ finnst maður hafa verið einhvers staðar, inni í leiksýningu eða bók. Ef takturinn er ekki til staðar þá er eins og manni sé alltaf kastað út úr verkinu af og til.“ Þó Guðrún sé nú fastráðin hjá L.R. þá eru ekki nema þrjú ár síð- an það varð. Fyrir þann tíma var hún lausráðin leikari í tíu ár, ým- ist hjá L.R. eða Þjóðleikhúsinu. En hvað þýðir slík lausráðning? ,,Það getur verið afskaplega baga- legt að vera lausráðinn því ef þú færð hlutverk hjá öðru leikhúsinu þá treystir hitt sér ekki til að ráða þig í hlutverk hjá sér því þau treysta sér ekki til að samræma sína hluti, þ.e. sínar sýningar. Þannig er hægt að lenda í því að vera í einu hlutverki í eitt ár eða fleiri og þó maður sé lausráðinn þá er maður ekki á markaðnum heldur bókaður upptekinn. Það gefur hins vegar ekki heil mánað- arlaun að vera í einni sýningu. En lausráðning er betri að því leyti að leikarinn ræður sjálfur hvað hann gerir — það er hægt að hafna hlut- verkum sem eru manni ekki að skapi en það geta fastráðnir leik- arar ekki.“ Eins og mjög margir ungir leik- arar hefur Guðrún tekið þátt x starfsemi hinna s.k. frjálsu leik- hópa. Lék hún m.a. með Alþýðu- leikhúsinu og Kjallaraleikhúsinu. Er einhver munur á því aðstarfa með ,,stofnanaleikhúsi“ og leik- hópum? ,,Það er allt að því sama lögmálið sem gildir á báðum stöð- um — þetta fer allt eftir því með hverjum maður er að vinna. Það hvflir auðvitað meira á þér þegar þú ert að vinna með leikhópum því þá er það ekki bara spurning um að leika heldur jafnvel að gera margt annað. Þó þarf það nú ekki 21

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.