Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 3

Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 3
HÉR ER ÉG-SÉRMIG EINHVER? I upphafi hverrar annar kemur nýr hópur í tölvukennslu í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla. Nemendur koma inn í stofuna setjast hvert við sína tölvu og stara í ásjónu hennar, forðast augnaráðið eða iða af ákefð. Þegar kerlingin kemur inn sem á að kenna fræðin, kynning er búin og störf eiga að hefjast byrjar alltaf nokkurn veginn sama rullan. Karlmannsstrákur, venjulega á aftasta bekk, byrjar á upphrópunum. Eg er nú vanur tölvum, þarf ég að vera hér? Hverju ertu nú vanur, góði minn? Nú, ég kann þetta allt. Allt hvað? Alla tölvuleiki sem hafa komið til landsins og pabbi keypti fleiri í útlöndum, ég kann allt. Jahá, en nú áttu að læra um tölvuna sjálfa, stýrikerfið MS- DOS, ritvinnslu, töflureikni og gagnagrunn. Það getur nú ekki verið mikið mál. Eg er búinn að eiga tölvu síðan ég var strákur. Ég kann þetta allt. Viltu nú samt ekki sitja hér til að byrja með og athuga hvort þú getur lært eitthvað nýtt? Jú, ég get sosum gert það. Af hverju? Bara. Þetta er nú ekki mjög erfitt. Er það ekki? Nei, viltu ekki reyna og ég skal hjálpa þér? Jú, ætli ég verði ekki að gera það. Eftir þetta byrjar þeysingurinn, nýtt efni er kennt og nemendur eiga að spreyta sig sjálfir á lausn verkefnis við tölvuna sjálfa. Strákurinn hljóðar eftir augnablik, og fullyrðir að þetta sé ekki gert eins og kennarinn lagði fyrir, tölvan virki ekki, allt sé bilað, og komdu strax! Stelpan situr enn með skelfingarsvip fyrir framan skjáinn og er ekki farin að hreyfa sig. Hvoru á að sinna fyrst? Smám saman sjóast allir í samverunni, en strákarnir leitast við að rétta stelpunum hjálparhönd af því „þeir kunna allt" og stelpurnar eru furðulega oft hjálparvana þegar strákar eru nálægir. En þegar upp er staðið eftir önnina, eru stelpurnar samt oft með hærri einkunn a.m.k. hærri en hjálparleysi annarinnar hafði gefið til kynna. Strákarnir sem hins vegar kunnu ekki allt þegar að prófi kom, horfa ráðvilltir á einkunnina sína sem er lægri en hjálparvana stelpunnar sem sat við hliðina á honum. Hvaða hlutverk er þetta unga fólk að leika? Lára Stefánsdóttir TIL ÁSKRIFENDA Ritstjórn VERU biður áskrifendur afsökunar á því hve stutt er á milli blaða að þessu sinni. Það stafar af mistökum í prentun síðasta blaðs sem tafði útgáfu þess. Fyrsta blað ársins 1991 kemur út í febrúar. Ritstjórn VERU. Eftir tímann kemur stelpa: Ég kann ekkert í tölvum. Nú, þú komst til að læra um tölvur en ekki til að sýna hvað þú kannt. Ég get ekki lært þetta, ég er viss um það. KONUR í KÚV/ET 6 Viðtal við Birnu Hjaltadóttur. FISKVINNSLA, FISKVINNSLA 11 Unnur Dís Skaptadóttir, mannfræðingur, athugar atvinnu og f jölskyldulíf í íslenskum sjávarþorpum. ÞVÍ FLYKKJAST ÞÆR SUÐUR? 15 Frá ráðstefnu um byggðaþróun. FEMINÍSKAR KÖKUUPPSKRIFTIR 19 KVENNABLAÐIÐ HLÍN 24 HEIMILISIÐNAÐARSAFNIÐ Á BLÖNDUÓSI 25 GETUR ULL ORÐIÐ GULL? 27 AUKIN HREYFING, MEIRA SJÁLFSTRAUST 29 ÞINGMÁL 31 ÚR LISTALÍFINU 32 BÓKADÓMAR 34 3

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.