Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 16

Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 16
V VIÐ ERUM EKKIEINAR! Við erum ekki einar, var yfirskrift greinar sem Kerstin Gulbrand- sen, þekkt sænsk fjölmiðlakona skrifaði um ráðstefnuna í Hvera- gerði. Kerstin, sem fer á eftirlaun eftir tvö ár, hefur varið stórum hluta lífs síns í baráttuna fyrir bættum kjörum kvenna - og bar- áttuna gegn óeðlilegri byggða- röskun. Hún býr í smábænum Arvidsjaur uppi við heimskauts- baug og rekur þar umfangsmikið fjölmiðlafyrirtæki. I fyrrnefndri grein nefnir hún byggðaþróun á Islandi sem dæmi um slæma þró- un. Hún lítur á flótta íslenskra kvenna úr dreifbýli sem vanda- mál á mjög háu stigi. „Við hér í Norður-Svíþjóð erum sem sagt ekki ein um þetta vandamál", skrifar Kerstin í blaðið Norrlándska Socialdemo- kraten eftir að hafa lýst íslenskum byggðaþróunarvanda. „Við eig- um þetta vandamál sameiginlegt með öllum hinum þjóðunum á Norðurlöndum, m.a.s. litlu Fær- eyjum. Ungar konur flýja gamal- dags vinnuaðstæður, einangrun og karlveldi og þær gera það hvort sem þær búa í finnsku Ivalo, norsku Bardu, dönsku Hirtshals, íslensku Hólmavík eða sænsku Laisvall. Og því skyldu þær ekki gera það? Eiginlega hafa þessar konur aldrei verið til, ekki einu sinni sem litlar stelpur. Þær hafa aldrei verið spurðar álits, enginn hlustar á þær jafnvel þó að þær brýni raustina. Úti á landi er alltaf litið á ungar konur sem tilvonandi eiginkonur, sem auð- vitað eiga að vera á sínum stað þegar þeirra er þörf. Þær eru aldrei álitnar neins virði sjálfar - aldrei er litið á konur sem vaxtar- sprota, nauðsynlegan öllum breytingum samfélagsins. Ungu konurnar sjá strit mæðr- anna og þjónustulund þeirra við feður og syni - og þær hugsa: „Neeei takk!" Þær hafa fyrir aug- unum sjálfsagðan rétt karlanna til valda og áhrifa og þær sjá að strákarnir fá meirihluta sameigin- legra sjóða til sinna þarfa. Og þær hugsa með sér: „Hér er ekkert pláss fyrir mig - ÉG FER!" A sjöunda áratugnum var mikill fólksflótti úr sveitum Svíþjóðar. Norðurbotn, nyrsta lén landsins - Ungar konur flýja gamaldags vinnuaöstœöur, einangrun og karlveldi og þœr gera það hvort sem þœr búa í finnsku Ivalo, norsku Bardu, dönsku Hirtshals, íslensku Hólmavík eöa sœnsku Laisvali. Víöa er tala ógiftra karla ó giftingaraldri upp undir 300 ó hverjar 100 ein- stœöar konur. Spurningin er hvort þetta sé ekki frekar vandamól karla en kvenna. þar sem Kerstin Gulbrandsen býr - fór verst út úr þessum byggða- breytingum. Það voru einkum konurnar sem flúðu. Bæði vegna þess að erfiðara var fyrir þær að fá vinnu í dreifbýlinu, en einnig vegna þess að félagshættir dreif- býlis eiga síður við konur en karla. Karlmenn í norðrinu dund- uðu sér gjarnan við veiðar og vél- sleðaferðir og höfðu ekki áhyggj- ur af fátæklegu menningarlífi. En konurnar flúðu fásinnið. Síðustu árin hafa miklar breyt- ingar orðið á lífinu í nyrstu héruðum Norðurbotns. Stjórn- völd hafa gert mikið til að viðhalda þessum byggðum. En stærsta breytingin hefur kannski komið innan frá. Einskonar hug- arfarsbylting hefur verið gerð. Norðlendingar eru hættir að skammast sín fyrir uppruna sinn og mállýsku. Menn eru farnir að skoða sögu sína og skapa úr henni ýmsa merka menningar- viðburði sem vekja athygli fyrir sunnan. Nú er talað um Norður- botn sem suðupott sænskrar menningar, þar blandast samíska, sænska og Tornedalsfinnska (mál finnskumælandi Svía). En röskun á hlutfalli kynjanna í litlu bæjunum er ennþá áberandi. Víða er tala ógiftra karla á gifting- araldri upp undir 300 á hverjar 100 einhleypar konur. Og spurn- r 16

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.