Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 7

Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 7
Myndir: Þórdís Ágústsdóttir í Kúvœt eru margar konur í áhrifastööum, einkum konur af voldugum og ríkum fjölskyldum. Mér skilst að þessar konur fái að ráðstafa tekjum sínum sjálfar, því að eiginmönnunum ber að sjá fyrir heimilinu. fór þangað sem eiginkona mannsins míns og móðir barn- anna minna og ætlaði mér ekkert að vinna fyrstu árin á meðan börnin væru að aðlagast um- hverfinu. En strax árið eftir var mér boðin vinna hjá sænsku tryggingamatsfyrirtæki. Þar vann ég þrjá morgna í viku, en fékk ekkert atvinnuleyfi. Innanríkis- ráðuneytið fylgdist vel með því hvort fólk hefði atvinnuleyfi og þeir hringdu stundum þaðan og boðuðu komu sína. Þá var mér sagt að vera heima. Einu sinni þegar ég var ein að vinna komu tveir menn á skrifstofuna. Það var alveg greinilegt að ég var að vinna, það var kveikt á ritvélinni og möppur opnar á borðinu hjá mér. Þeir spurðu hversu margir ynnu þarna. Einn, svaraði ég. Þá báðu þeir mig um skilríki, en ég sagði að það væri ekki ég sem ynni þarna, ég væri bara fjöl- skylduvinur og væri að passa símann fyrir eigandann sem hefði skroppið frá. Það vildi mér til happs að maður á næstu skrif- stofu vottaði það að ég væri fjölskylduvinur sem passaði stundum símann. Hann var Arabi svo þeir trúðu honum. Seinna var ég ráðin sem ritari við læknadeildina. Það var heil- mikið bras að fá atvinnuleyfi, en að lokum tókst að sannfæra yfir- völd um að mín væri þörf, þar sem ég talaði bæði sænsku og ensku. En Gísli varð að veita mér skriflega heimild fyrir því að ég mætti vinna úti. Eg varð líka að fá hans leyfi til að fá ökuskírteini. Siðir og venjur í Arabalöndunum eru öðruvísi en við eigum að venjast og staða konunnar er allt önnur. Líf kvenna í Arabalöndum er miklu áhyggjulausara en okkar líf. Þær þurfa ekkert að spekulera í því sem karlmennirnir hugsa um. Karlmennirnir eru aldir upp til að afla tekna og sjá fyrir heim- ilinu, en konurnar til að hugsa um heimilið. Karlmenn bera ábyrgð á uppeldi sona sinna frá sjö ára aldri og ala þá upp til karlmannastarfa. I Kúvæt eru margar konur í áhrifastöðum, einkum konur af voldugum og ríkum fjölskyldum. Mér skilst að þessar konur fái að ráðstafa tekj- um sínum sjálfar, því að eigin- mönnunum ber að sjá fyrir heimilinu. Kóraninn ætlast til hlýðni og undirgefni af konum og þeim finnst það sjálfsagt. Þær líta kóraninn öðrum augum en við og finnst hann ekki kvenfjandsam- legur. Samkvæmt kóraninum mega karlmenn tuska konur til. En ég veit ekki til að ofbeldi gegn konum sé algengt í Kúvæt. Menn eru stoltir af fjölskyldu sinni og hugsa vel um konuna og börnin. Þeir bera virðingu fyrir konunni. Siðir múhameðstrúarmanna, sem koma okkur ankannalega fyrir sjónir, eiga sér auðvitað sínar ástæður. Á tímum Múhameðs var karlmönnum leyft að taka sér fjórar eiginkonur. Þetta voru miklir ófriðartímar og margir karlmenn féllu í styrjöldum. Þá var enginn til að sjá fyrir konun- um, sem ekki gátu aflað sér lífs- viðurværis sjálfar. Sú hefð komst þá á að skipta konunum á milli eftirlifandi karlmanna. Fjölkvæni er orðið fátítt núorðið. Það þykir of dýrt að eiga margar konur, því að mönnum ber skylda til að gera þeim öllum jafn hátt undir höfði. En séu margar konur á heimilinu er það sú fyrsta sem hefur mest völd. Upphaflega báru konur blæj- ur fyrir andlitinu til að skýla sér

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.