Vera - 01.12.1990, Side 6

Vera - 01.12.1990, Side 6
Myndaalbúm og aðrir per- sónulegir munir urðu eftir í Kúvœt þegar Birna Hjaitadóttir yfirgaf heimili sitt í skyndi í septembersíðastliðnum. Þegar við sitjum ó heimili Birnu í hólf- tómri leiguíbúð í Reykjavík og tölum um konurnar í Kúvœt, óskar hún b©ss að hún hefði myndir til að sýna mér. - Eða bara að allt þetta fólk sem við erum að tala um vœri komið hingað Ijóslifandi, bœtir hún við. En Birna er sögumaður af guðs nóð og þarf engin hjólpartœki til að framkalla myndir í hugum hlustenda. Við gefum Birnu orðið: „Þegar samningar tókust á milli háskólanna í Kúvæt og Lundi í Svíþjóð, þar sem við bjuggum, vildu Kúvætar fá hjálp við upp- byggingu svæfingar- og gjör- gæsludeildar og Gísli, maðurinn minn, sló til. Þegar við fluttum til Kúvæt árið 1985 var ekki lengur arðvænlegt að fara þangað, en efnahagur fjölskyldunnar batnaði þó til muna og við gátum greitt upp skuldir okkar. Samt vorum við fátæklingar á mælikvarða Kúvæta, sem búa í landi allsnægt- anna. Það er erfitt að gera sér grein fyrir hversu ótrúlega rík þessi olíuríki eru. Manni blöskrar oft þegar maður sér gullarm- Gísli varö aö veita mér skriflega heimild fyrir því aö ég mœtti vinna úti. Eg varð líka aö fó hans leyfi til aö fá ökuskírteini. böndin hangandi á slám í búðunum eins og pylsur í kjör- búð. Andvirði eins svona arm- bands gæti satt hungur heillar fjölskyldu í Eþíópíu í lengri tíma. Raunveruleg fátækt er ekki til þarna, en fólk er auðvitað mis- efnað. í Kúvæt er hægt að sjá miklar andstæður. Það er t.d. furðulegt að sjá mjög fornfálegan hirðingja standa í rúllustiga í stórmarkaði að amerískri fyrir- mynd og fara svo með varning- inn út í tjaldið sitt. Arin okkar fimm í Kúvæt voru dýrðlegur tími. Mér fannst gott að vera þar þó að ég sé kona. Ég 6

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.