Vera - 01.12.1990, Page 9

Vera - 01.12.1990, Page 9
kíló af gullskartgripum á sér. Konurnar leystu hárið, sem var sítt niður á rass, og sveifluðu því þegar þær hreyfðu sig í dans- inum. Smástelpur alveg niður í tveggja ára gamlar voru í ævin- týralegum prinsessukjólum, hlaðnar skartgripum og málaðar í framan. Það var geysilegt fjör í dansinum, því að þetta fólk hefur engar hömlur. Tvær ungar stúlkur sem kunnu dálítið í ensku gáfu sig á tal við okkur. Önnur spurði mig hvort maðurinn minn hefði áhuga á að kvænast konu frá Kúvæt. Eg sagðist ekki vita það, ég hefði ekki spurt hann. Yrðirðu reið, spurði hún og bætti svo við „Þú myndir líklega taka allt gullið þitt og fara". Ég sagðist nú ekki eiga neitt gull, en líklega myndi ég taka börnin mín og fara. Þá hlógu þær mikið og fannst þetta mjög fráleitt. Við vorum líka einu sinni viðstödd jarðaför. Tengdamóðir sænskrar kunningjakonu okkar hafði látist. Fólk er jarðsett dag- inn eftir að það deyr, en það eru bara karlmenn sem fara að graf- reitnum. Eftir jarðarförina er lík- vaka á heimili þess látna í upp- undir viku. Fólk kemur til að votta ættingjum samúð. Karl- mennirnir í fjölskyldunni safnast saman í dívaníunni og taka þar á móti karlmönnum sem koma til að votta þeim samúð. Konurnar hittast inni á heimili hins látna. Það var svart haf af konum á heimili hinnar látnu. Þær voru allar steinþegjandi. Það má ekki tala og það er ekki grátið. Þegar ég kom þar inn ásamt tveimur sænskum vinkonum mínum heilsuðum við dætrum og tengdadætrum hinnar látnu með kossi á kinnina. Síðan sátum við steinþegjandi í 15 mínútur og okkur var ekki boðið upp á neitt. Þegar okkur fannst hæfilega langur tími liðin, risum við upp, kvöddum sömu konur með kossi og fórum. I Saudi-Arabíu, nágrannalandi Kúvæt, verða konur að hylja and- lit sitt með blæjum. Ég get ekki ímyndað mér að þær sjái mikið Hins vegar gefa eiginmenn þeirra þeim gullskartgripi að andvirði 12-14 milljóna íslenskra króna í morgungjöf. Þetta eru 22 karata gullskartgripir - höfuðdjósn, eyrna- djósn, armbönd, fótaskraut, gullfestar og hringir. Gullið eiga þœr síðan alla œfi. Það er þeirra trygging. Ég sagðist nú ekki eiga neitt gull, en líklega myndi ég taka börnin mín og fara. Þó hlógu þœr mikið og fannst þetta mjög fróleitt. Þegar ég var í Kúvœt var ég svo stolt af íslandi og sagði öllum fró því að forsetinn okkar vœri kona og að við œttum meira að segja heilan stjórn- mólaflokk fyrir konur og hann hefði mikið fylgi. En svo kem ég hingað og sé að lítið hefur breyst síðan ég fór. með blæjur fyrir öllu andlitinu, enda mega þær t.d. ekki keyra bíl. í Kúvæt klæðast margar konur vestrænum fötum, en ætlast er til að kvenfólk sem komið er á kynþroskaaldur hylji hárið, axlirnar og hnén til þess að freista ekki karlmanna. Við vestrænar konur þurfum ekki að hylja okkur, vegna þess að við erum eign annarra manna. En það er glápt voðalega mikið á okkur, menn snúa sér við á götum og glápa á eftir okkur. Dóttur minni fannst þetta hræðilega óþægilegt, en ég var hætt að sjá það. Ég er nú ekki ung stúlka og hef ekkert sérlega ljóst hár, en ég lenti oft í kvenfrelsisáhrifum í Kúvæt. Til eru kvennasamtök, þar sem talað er um menningu og að konur ættu að mennta sig. Þessi samtök beita sér fyrir því að konur fái kosningarétt. Ég veit að líf kvenna í öðrum Arabalöndum t.d. í Iran er miklu verra en líf kvenna í Kúvæt. I bókinni „Out of Iran" er sagt frá manni sem lét konu sína í fangelsi af því að hún mótmælti honum. Þegar hann kom til að sækja hana var búið að taka hana af lífi í misgripum. En honum var bara boðið að velja sér aðra. Annars eru arabakonur nokkuð frjálsar og að sumu leyti því að ungir menn fylgdu mér eftir og flautuðu á mig. Ég passaði mig bara á að horfa aldrei í augun á karlmanni. Það þýðir að maður sé að gefa honum undir fótinn. Við þekkjum kúvætska fjöl- skyldu, þar sem konaii er mennt- uð. Hún hylur ekki hárið og gengur í evrópskum fötum. En þau hjónin fara sjaldan út saman. Hún fer út með systrum sínum. Þær vilja hafa sitt kvenmannslíf fyrir sig. Karlarnir tala saman um heimsmálin, en konurnar tala um kóraninn, matargerð, uppeldi og önnur kvenleg efni. Ungar stúlk- ur tala mikið um væntanleg mannsefni. En þá velta þær ekki fyrir sér útliti hans eða eiginleik- um, heldur fjölskyldu hans. Það er mikils virði að gifast inn í góða fjölskyldu. Það ber dálítið á vestrænum frjálsari en við. Margar konur í Kúvæt búa náttúrulega við mikið ríkidæmi með fullt af þjónustu- fólki, þannig að þær hafa betri tíma til að þroska sjálfar sig en við höfum Það kom mér á óvart þegar ég kom heim til Islands eftir þrettán ára fjarveru hversu lítið hefur gerst í jafnréttismálum. Þegar ég var í Kúvæt var ég svo stolt af Islandi og sagði öllum frá því að forsetinn okkar væri kona og að við ættum meira að segja heilan stjórnmálaflokk fyrir kon- ur og hann hefði mikið fylgi. En svo kem ég hingað og sé að lítið hefur breyst síðan ég fór. Konur í ábyrgðarstöðum hafa t.d. lægri laun en karlar í samsvarandi stöðum. Það hversu lítið hefur tekist að breyta sýnir bara hve ofboðslegt karlrenibuþjóðfélag þetta er." BÁ 9

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.