Vera - 01.12.1990, Page 26
Halldóra safnaði á ferðum sínum sýnishornum og munum sem tengdust heimilisiðnaði og flest af því er nú
til sýnis í Heimilisiðnaðrsafninu.
landið þvert og endilangt á árun-
um 1924-57 sem ráðunautur
Búnaðarfélagsins í heimilisiðn-
aði. Hún safnaði á ferðum sínum
sýnishornum og munum sem
tengdust heimilisiðnaði og flest
af því er nú til sýnis í Heimilis-
iðnaðarsafninu.
Hulda Á. Stefánsdóttir, skóla-
stjóri Kvennaskólans á Blöndu-
ósi, átti hugmyndina að safninu
sem opnaði tveimur árum áður
en skólinn var lagður niður.
Guðrún Jónsdóttir og Knútur
Jeppesen, arkitektar, teiknuðu
allar innréttingar í safnið og gáfu
því alla vinnu sína. Kvenna-
skólinn gaf safninu ýmislegt úr
fórum sínum, t.d. öll tóvinnu-
áhöld skólans, en sumt af því var
frá Tóvinnuskólanum á Sval-
barði sem Halldóra rak um tíma.
Samband austur-húnvetnskra
kvenna hefur rekið Heimilisiðn-
aðarsafnið frá upphafi og félags-
konur gefið alla vinnu sína. Safn-
ið hefur vaxið og dafnað og úti-
húsin eru fyrir löngu orðin of
lítil. Gjafir berast í sífellu og
skráðir munir eru nú orðnir um
900.1 Halldórustofu eru auk þess
rúmlega 300 munir og fjölmargar
vefnaðarprufur. Safninu var ný-
lega gefið gamla sýslumanns-
26
Elísabet Sigurgeirsdóttir, „safnvöröur".
húsið á Kornsá í Vatnsdal, en
félagskonur hafa ekki fjárhags-
legt bolmagn til að flytja húsið til
Blönduóss. Með flutningi húss-
ins ynnist tvennt, þetta sögulega
hús sem er rúmlega hundrað ára
gamalt yrði varðveitt og Heim-
ilisiðnaðarsafnið fengi aukið
rými fyrir starfsemi sína. Félags-
konur eru mjög áhugasamar um
safnið og framtíð þess og ýmis-
legt bendir til að bæjarsjóður
Blönduóss og Héraðsnefnd Aust-
ur-Húnavatnssýslu séu nú loks-
ins að gera sér grein fyrir því
hvílík perla Heimilisiðnaðar-
safnið er.
Samband austur-húnvetnskra
kvenna á þakkir og aðdáun skilið
fyrir störf sín við Heimilisiðn-
aðarsafnið. Islensk menningar-
arfleifð er fremur fátæk af mun-
um sem tengjast vinnu og frí-
stundum kvenna. Framtíð Heim-
ilisiðnaðarsafnsins, sem er eina
safnið sem hefur sérhæft sig í
þessum ákveðna þætti íslenskrar
kvennasögu, hlýtur því að skipta
okkur allar máli. VERA hvetur
lesendur sína til að heimsækja
Heimilisiðnaðarsafnið næst þeg-
ar þeir eiga leið um Blönduós.
RV
Myndir: Ragnhildur Vigfúsdóttir og
Helga Guðrún Helgadóttir