Vera - 01.12.1990, Qupperneq 27

Vera - 01.12.1990, Qupperneq 27
GETUR ULL ORÐIÐ „Hin seinni ár hefur mikiö veriö prjedikaö um aukna kjötfram- leiöslu, kjöf, kjöt! ... En ullin. Um hana hefur minna veriö hugs- aö og talað. Eiginlega ekkert. ... Viö þurfum aö sýna ullinni okkar meiri sóma, eins og gömlu konurnar geröu, sem vönduöu til ullarþvottarins, völdu úr, geymdu, söfnuöu litum og gœöum. ... Öll okkar viöleitni í heimilisiðnaði á aö snúast um ullina, hún er okkar aödáanlega hráefni, sem viö höfum nóg af, og sem viö kunnum að hagnýta." Þessi aðvörunarorð Halldóru Bjarnadóttur í Hlín 1961 náðu ekki eyrum ráðamanna og því fór ef til vill sem fór í ullariðnaði íslendinga. VERA hafði samband við Unni Kristjánsdóttur, iðnráð- gjafa á Blönduósi, og Guðrúnu Jónsdóttur, arkitekt, til að forvitn- ast um hugmyndir varðandi Heimilisiðnaðarsafnið og Kvenna- skólann á Blönduósi, sem tengjast draumi Halldóru Bjarnadóttur um íslensku ullina og íslenskan heim- ilisiðnað. Unnur flutti á Blönduós fyrir fjórum árum og fór fljótlega að velta því fyrir sér hvað hægt væri að gera við Kvennaskólann og allt sem honum fylgir. Kraftar fólks á Blönduósi hafa, að hennar sögn, farið í að byggja upp bæinn og atvinnulífið og menningin því orðið hornreka. Unnur hitti Guð- rúnu Jónsdóttur síðastliðið sum- ar, en Guðrún er nýráðin til að vinna að aðalskipulagstillögum fyrir Blönduós. Guðrún hefur á undanförnum árurn verið arki- tekt skólans og Heimilisiðnaðar- safnsins og velunnari þess frá upphafi. Þess má geta að Guðrún er dóttir Huldu Á. Stefánsdóttur, sem var skólastjóri Kvennaskól- ans til 1967 og átti hugmyndina að Heimilisiðnaðarsafninu. “Viö þurfum aö sýna ullinni okkar meiri sóma, eins og gömlu konurnar geröu, sem vönduðu til ullarþvottarins, völdu úr, geymdu, söfnuöu litum og gœöum...“ I vinnu sinni við aðalskipulagið telur Guðrún að skólinn og safnið geti haft vaxandi hlutverki að gegna í sambandi við allt rnenn- ingar- og skólastarf á staðnum, svo og til að vekja áhuga ferða- manna á því að staldra við á Blönduósi. Guðrún telur far- sælast að byggja á sérkennum og hefðum staðarins og það sé m.a. hægt með því að gera veg safns- ins meiri og tengja það annarri starfsemi á staðnum. Hugmynd Guðrúnar er sú að Kvennaskól- inn verði lista-akademísk stofn- un. Væri það vel við hæfi því að Þorvaldur Skúlason og Snorri Arinbjarnar voru báðir frá Blönduósi og í Kvennaskólanum var lagður grundvöllur að annars konar list, vefnaði og ýmsum hannyrðum. Guðrún vill að kornið verði á sérhæfðu námskeiðahaldi í list- iðnaðarnámi á alþjóðlegum mælikvarða. Námið yrði að hluta til tengt ullarvinnu og nýtingu íslensku ullarinnar. Einnig mætti leggja áherslu á annan heimilis- iðnað þó hann tengist ekki ull- inni, t.d. væri auðveldlega hægt að koma upp smiðju og öðru sem tengist fornum vinnubrögðum. Oll húsakynni eru til staðar og lítið mál að aðlaga þau nýju hlutverki. I Kvennaskólanum má auðveldlega innrétta tvær til þrjár listamanna- eða fræðimannsíbúð- ir og útbúa góða vinnuaðstöðu. Séra Árni Sigurðsson á Blönduósi segir í greinagerð sem hann af- henti i Farskóla safnmanna í haust að „til þess að skapa skól- anum og safninu starfsskilyrði þyrfti að setja allt svæðið austan og sunnan Kvennaskólans undir hinar nýju stofnanir. Rækta mætti m.a. túnblett og sýna á sumrum heyverkun, eins og hún var stunduð á Islandi um aldaraðir, svo og hleðslu torfbæja. Gera þyrfti upp og flytja gamla verslunarhúsið á Blönduósi á lóð Kvennaskólans og koma þar upp vísi að gamalli búð. Svo fátt eitt sé nefnt. Með því yrði Heimilis- iðnaðarsafnið lifandi safn og Kvennaskólinn á Blönduósi að nokkru endurreistur og þjónaði þeim tilgangi er honum var að hluta ætlaður í upphafi." Unnur Kristjánsdóttir segir að framtíðarsýnin sé sú að byggja upp mjög sérhæft námskeiða- hald, þar sem íslenska ullin og séraðstaðan á Blönduósi yrði 27

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.