Vera - 01.12.1990, Page 28
undirstaðan. Verkefnið myndi í
raun hefjast úti í sveit með smöl-
un, rúningu og meðferðinni á
ullinni. - Þess má geta að á
Hvammstanga er í gangi þró-
unarverkefni meðal bænda sem
nota nýjar hugmyndir í nýtingu
og sölu ullar. - Kvennaskólinn
byiði vinnuaðstöðu og safnið yrði
listamönnum án efa uppspretta
hugmynda. Hægt væri að taka á
móti nemendum úr Myndlista-
og handíðaskólanum og úr
handavinnudeild Kennarahá-
skólans sem ynnu þar sérstök
verkefni.
Unnur sagðist fyrst hafa séð verk-
efnið í mjög rómantísku ljósi, en
þegar hún fór að kynna sér sögu
Kvennaskólans breyttist afstaða
hennar. Kvennaskólinn var eng-
inn útsaumsskóli, metnaður
heimamanna og skólastjóra var
bóknámið. Að sjálfsögðu skipaði
handavinnan líka veglegan sess
og Unnur kvað það mikils virði
að verk kvenna og saga fái viður-
kenningu og njóti virðingar. „Við
erum ekkert með í dag nema fjall-
konuna og forsetann, við erum
ekki með lifandi starfsemi sem
Guðrún vill að
komið verði á
sérhœfðu nám-
skeiðahaldi í
listiðnaðarnámi á
alþjóðlegum
mœlikvarða.
„Guði sé lof þá
gekk kvenna-
baráttan ekki af
þessum hluta af
sögu kvenna
dauðum, sem
endurspeglast í
kvennaskólunum."
byggir á sögu kvenna. Hús-
mæðraskólarnir fengu á sig
slæma mynd og þóttu hörmulega
hallærislegir. Þeir voru taldir við-
halda kúgun á konum og kúgun
þeirra á sjálfri sér." Þessi lítils-
virðing á eigin sögu telur Unnur
að sé að hverfa og „Guði sé lof þá
gekk kvennabaráttan ekki af
þessum hluta af sögu kvenna
Guörún Jónsdóttir, arkitekt
dauðum, sem endurspeglast í
kvennaskólunum. Kvennaskól-
arnir verða aldrei endurreistir en
þeir eru hluti af menningu okkar
og sögu og ættu að njóta til-
skyldrar virðingar og það er
kominn tími til að fólk geri sér
grein fyrir því að þeir eru und-
irstaða margs sem við gerum í
nútíð og framtíð."
Aðspurð sagði Unnur að það
væri um að gera að vera stórhuga
ef byrja ætti á slíku endurreisn-
arstarfi, rétt eins og þegar farið
var af stað með Kvennaskólann í
upphafi. VERA er sammála Unni,
Guðrúnu og séra Árna um að fátt
héldi betur á lofti minningu Hall-
Unnur Kristjánsdóttir.
dóru Bjarnadóttur, Elínar Briem,
Huldu Á. Stefánsdóttur og þeirra
fjölmörgu kvenna sem hafa lagt
sitt af mörkum til húsmæðra-
skólanna og heimilisiðnaðarins í
landinu en lista-akademía í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
RV
LÍFRÆN HÚÐRÆKT
Viöskiptavinir athugiö
aö Grœna línan er flutt
aö Laugavegi 46,
(j(tfM/mffl
Laugavegi 46, 101 Reykjavík, Sími 62 28 20.
JÓLAGJÖF
FEMINISTANS
FÆST HJÁ KVENNALISTANUM
LAUGAVEGI 17.
Mikiö
úrval af:
Nœlum,
eyrnalokkum,
skólum,
bolum,
náttkjólum,
feminískum
undirfatnaöi
og
ýmsu ööru.
LÍTTU VIÐ!
Kvennalistinn, Laugavegi 17, 101 Reykjavík, sími 13725
28