Vera - 01.12.1990, Side 35

Vera - 01.12.1990, Side 35
UR LISTALIFINU GULLFJÖÐRIN Texti og myndir: Áslaug Jónsdóttir Mól og menning!990 Fyrir nokkrum dögum fékk ég upp í hendurnar nýút- komna barnabók eftir Ás- laugu Jónsdóttur. Bókin heitir „Gullfjöðrin" og er afar falleg og að rnörgu leyti sérstæð barnabók er segir frá ævintýri litla gula fuglsins sem finnur gullfjöður sem hann ákveður að koma til skila. Höfundur fylgir ævintýrinu úr hlaði en síðan segja myndirnar sög- una. í lok bókarinnar er síðan ævintýrið skráð. Það er því ekki hægt að lesa ævintýrið og skoða myndirnar á sarna tíma enda hefur það líklega ekki verið ætlun höfundar. Mér finnst það góð hug- mynd að hafa textann ekki á myndasíðunum. Það mundi skemma svo fallegar myndir ISABEL ALLENDE Eva Luna segir frá Eva Luna segir ástmanni sínum, Rolf Carlé, tuttugu og þrjár smá- sögur um jafnmörg tilbrigði ástar- innar. Hér segir af skuggalegum stigamönnum og háttprúðum hefð- armegjum sem elskast með ærsl- um og glæframönnum sem stíga í vænginn við annálaðar sóma- konur; tinandi gamalmenni hefja upp langþráð bónorð, mæðgur keppa um hylli farandsöngvara, draumar rætast og skýjaborgir hrynja. Sagt er frá klækjum og vélabrögðum, taumlausri ágirnd og takmarkalausri fórnfýsi og hvort sem sögurnar eru sóttar beint ífurðulegan veruleika Suður- Ameríku eða framkallaðar með óþrjótandi ímyndunarqfii skáld- konunnar eiga þær allar sam- merkt að miðla ást á lífinu í sínum Jjölbreytilegustu myndum. Isabel Allende hefur þegar öðl- ast hylli íslendinga fyrir litríkar sögur sinar, Hús andanna, Ást og skugga og Evu Lunu, þar sem hún sameinar töfraraunsæi og skarpa samfélagssýn. Tómas R. Einarsson þýddi úr spænsku. Bókin er 218 bls. Verð: 2980,- auk þess sem ég tel að upp- bygging bókarinnar bjóði upp á marga möguleika. Ég las ævintýrið fyrst sjálf og settist síðan niður með fjögurra ára dóttur minni, skoðaði með henni myndirn- ar, sem hver og ein er sann- kallað listaverk, og sagði henni söguna. Hún vildi skoða myndirnar strax aftur en í þetta skipti var það hún sem sagði söguna. Það var greinilegt að þetta litla ævin- týri höfðaði til hennar, hún lifði sig svo inn í söguna. A>laug Jónsdóitir GULLFJOÐRIN Myndirnar gegna stóru hlutverki, þær segja söguna. Ævintýrið sjálft er vel skrifað en ég tel að með litlum börn- um sé áhrifaríkast að segja þeim söguna af litla fuglinum og skoða með þeim mynd- irnar. Einnig væri hugsanlegt að lesa ævintýrið fyrir börn án þess að sýna þeim myndirnar og síðan endursegja það með þeim eða fá þau til að endur- segja það og þá með mynd- irnar að leiðarljósi. Sem kennari yngri barna tel ég að þessi bók henti eink- ar vel í kennslu. Með ungum börnum væri hægt að vinna með bókina á margan hátt, t.d. bara með myndirnar og láta þau segja frá, skrá eða leika ævintýri litla, gula fuglsins. Einnig væri tilvalið að lesa ævintýrið fyrir börnin án þess að sýna þeim myndirnar en lofa þeim síðan að tjá atvik úr ævintýrinu myndrænt. Þá má ekki gleyma umræðum um boðskap ævintýrisins. Hvað segir þetta litla ævintýri okkur og hvað getum við lært af því? Þetta er kærkomin bók á heimilið og ég hlakka til að vinna með hana með nem- endum mínum. Gunnhildur Óskarsdóttir, 2ja barna móðir og kennari. 35

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.