Vera - 01.12.1990, Side 39

Vera - 01.12.1990, Side 39
U R LISTALIFINU að ljóðin fjalli um sjódrukkn- aðan mann. Svo er ekki, en Vigdís vill tengja minningarn- ar við sjó. Þau feðgin finnast í fjöru í fyrstu minningunni og myndir fortíðarinnar sér hún speglast í vatni þar sem hún mókir við bakkann. „Bakki" er ríkjandi staðarákvörðun í ljóðunum, vel valið orð sem vísar bæði til vatnsbakka og grafarbakka. Bókin byggir á afar per- sónulegum tilfinningum sem eru misjafnlega aðgengilegar fyrir utanaðkomandi. Einna erfiðast er að ná sambandi við frásagnir af minningum föð- urins, kannski vegna þess að BLÁÞRÁÐUR Linda Vilhjálmsdóttir Mál og menning 1990 Út er komin ljóðabók eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og ber hún heitið Bláþráður. Linda hefur áður birt ljóð í blöðum og tímaritum en þetta er fyrsta bók hennar. Bláþráður hefur að geyma þrjátíu ljóð sem eru mjög mismunandi að formi og yrkisefni eru sótt víðs vegar að. Bókin er að nokkru leyti bláþræðir vilj- andi eða óviljandi. Blár litur kemur oft fyrir í þessum þrjá- tíu ljóðum enda litur fjarlægð- arinnar en bókin hefur að geyma fjarlægar myndir sem tengjast lauslega. Myndir úr öllum áttum gætu þá verið meginþema bókarinnar. Ljóðin eru átakalítil en á bak við þau býr alvara og þungi þrátt fyrir léttan og ertnislegan tón. „Þar segir: Þar vóru hestar og folar gæðingar noregskonúngar -allt blint". tilgerðarlegt orðfæri kemur stundum í staðinn fyrir dýpt („Flugu drekar í lofti með djúpgrænar slæður á stéli!"). Svipað má segja um nútímann í ljóðunum. Myndirnar eru einhvern veginn ómarkvissar og leysast upp þegar lesandi reynir að vinna úr þeim, í stað þess að gefa meira og meira í aðra hönd („hárin vefja sig um óræði minninganna"). Auðveldast er að ná minn- ingum hennar sem talar - um litlu systur með litla hjartað sem getur sprungið, um hina stelpuna sem kom aldrei heim, um pabba sem sönglar yfir próförkunum og geymir Þjóðviljann í óþægilegum stöflum sem tíu ára stelpa vill ekki að vinkonurnar sjái, um einveru með pabba meðan mamma er veik.... A stuttum kafla í seinni hluta bálksins blandast allur tími og þar rís hann hæst: „... Slekk Ijósið og vakna ekki fyrr en við göngum þorpsgötuna, þú með yrjóttu húfuna, þá sem stelpan mín tók traustataki um daginn til að geta geymt lyktina af hári þínu þótt þú værir horfinn, hin höndin á bakinu og ég segi að þú gangir of hratt. Þú byrjar að hlaupa og svei mér ef ég sé ekki að gráu buxurnar Brot þetta er úr ljóðinu Bergmáli. Vísanir eru notaðar á skemmtilegan hátt og þá sérstaklega í Bergmáli og Uppvakningi handa Kristjáni Steingrími en þar er sagt: ..Og höggið sem klýfur skápinn í tvennt niður Sturlúngu." Ljóðmyndir þær sem dregnar eru upp eru oftast nær skýrar og óvenjulegar samlíkingar áberandi. Ljóðin eru hljómmikil enda sterk lýsingarorð óspart notuð, er undirstrika hugsunina. Til þess eru einnig litir notaðir á nokkuð sérstæðan hátt: „Þær Salvör og Steinvör og gulur hrafn og grænn og Steinvala sofandi og óminnishegrinn hrekkur upp með hói verði lát á garginu. Hó! Ég sé reyk á röndinni og reykháf hó! hó!" Fjallað er um meðvitund- arleysi mannsins sem rankar ekki við sér fyrr en lát verður á garginu. Gleymskan verður meðvituð. Húmorinn í bókinni er sér- tækur og oft vandfundinn en jafnframt einkennandi þáttur. Gætir nokkurrar ertni í garð fortíðarinnar eða þjóðararfs- ins ef svo má að orði komast. Náttúran er Lindu greini- lega hugstæð en í bókinni má finna hugleiðingar um augna- blikið óhöndlanlega, ástina og margt fleira. Eins og áður sagði eru ljóð- in misjöfn að formi en það er þó oftast laust. í ljóðinu Þing- breytast í köflóttar hnébuxur og ég hleyp á eftir þér ..." (77) Þó að hér hafi verið gerð tilraun til að fjalla um þessa bók verður að viðurkennast að hún verst allri gagnrýni. I tileinkun framan við ljóðin kemur fram að bókin er skrifuð í minningu föður Vig- dísar, og hún er fyrst og fremst viðbrögð við sárri sorg. Þetta er fjölskyldubók, og hendur Vigdísar eru enn of bundnar til að hún geti glímt af fullum styrk við viðfangs- efnið. Eg er viss um að hún á eftir að reyna við það aftur með betri árangri. Silja Aðalsteinsdóttir völlur eða lag handa Merði er þó ort undir hætti eddu- kvæða eða fornyrðislagi: „Rökkur ristir rúnum fellið vaka á velli vandamenn. Skuggar skálda skuggafáka höggva í hamra hófaskelli." Síðasta ljóð bókarinnar ber nafnið Blús og er hér birt lítið brot úr því: „Kulkisan er blá og breiðir úr sér eins og haust á trjágrein eins víst er að maður verði tvísaga pegar kæriíeysislegur bláminn framundan breytist ífjólubláar fjólur." Er hér dregin upp falleg ljóðmynd af haustinu, en vorið kemur og fjarlægðin verður nálæg og því eins víst að skynsemi sú er var hverfist um sjálfa sig. Marín Hrafnsdóttir 39

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.