Vera - 01.08.1991, Side 3

Vera - 01.08.1991, Side 3
FRIÐHELGIN OG FJÖLSKYLDAN Friðhelgi - fallegt orð. Friðhelgi einka- lífsins, friður fyrir utanaðkomandi afskiptum af friðsælu heimilislífi. Mjög mikilvæg mannréttindi. En á stundum gengur virðing okkar fyrir friðhelgi fjölskyldulífsins út í öfgar. Virðingin breytist í afskiptaleysi og skort á náungakærleika þegar við sjáum ofbeldi, vanrækslu eða annan slæman aðbúnað á börnum og höfumst ekki að. Við eigum að skipta okkur af. Skiptum okkur af sfysagildrunni í garði nágrannans, skiptum okkur af átökum og barnsgráti í næstu íbúð, bendum nágrannakonunni á þann möguleika að leita til kvennaathvarfsins. Tilkynnum barnaverndaiyfirvöldum grun okkar eða vissu um óviðunandi aðstæður barna. Ábyrgðin er okkar allra, en sjaidan er fjallað um þá hlið. Æsifréttamenn greina reglulega frá hörmulegum atburðum í lífi foreldra sem fent hafa í klóm barnaverndarnefnda. Mætti draga þá ályktun af þeirri umijöllun að markmið barnaverndaraðila sé að leysa upp heimili, slíta börn úr faðmi foreldra sinna og valda sem mestri óhamingju. Minna ber á frásögnum af þeim fjölmörgu fjöl- skyldum, sem vegna aðstoðar um lengri eða skemmri tima geta breytt samskiptum sínum og aðstæðum þannig, að ekki þarf að sundra íjölskyldunni. Því fyrr sem gripið er í taumana, þeim mun meiri líkur eru á að börnin komist nokkurn veginn klakklaust í gegnum slíka reynslu. Vissulega gerist það einnig að börnum er komið fyrir hjá fósturforeldrum, en þá þykir orðið fullljóst að foreldrar geta ekki sinnt uppeldishlutverkinu. Þetta eru flókin mál og viðkvæm og ákvarðanir ekki teknar í skyndi. Oft á tíðum líða mánuðir og jafnvel nokkur ár áður en svo afdrifarík ákvörðun er tekin. Friðhelgi og frelsi er réttur hvers manns, en við megum ekki láta illa meðferð á þeim sem ekki geta krafist réttar síns afskiptalausa. Skiptum okkur af. Þórdís Guömundsdóttir V E R A Á G Ú S T Mað er stöðugt verið að tala um „fjölskylduna“. Hver kannast ekki við slagorð eins og: „Fjölskyldan á i vök að veijast! Það er ekki hlúð að fjölskyldunni í samfélaginu." Sumir telja upphaf alls ills vera í fjölskyldunni og vilja hana þvi feiga á meðan aðrir telja fjölskylduna vera hornstein þjóðfélagsins. Brúðkaup hafa sjaldan verið íburðarmeiri og skilnaðir hafa aldrei verið fleiri en nú. Á sama tíma og flestar rannsóknir á íjölskyldulífi sýna að ein aðal forsenda góðs fjölskyldulífs er nægilegar og vel nýttar samverustundir, þá hefur fólk sífellt minni tíma til að vera saman. „Ég held að í öllum manneskjum blundi sú þrá að eiga náið samneyti við aðra manneskju. Þetta lærum við i okkar fyrstu tengslum og það er eins og við leitum eftir slikum tilfinningaböndum í líflnu. Við getum hæglega lent í mörgum skipbrotum, en það aftrar okkur oftast ekki frá þvi að reyna aftur að ná sterku sambandi við aðra manneskju" segir Nanna K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi í viðtali við VERU. Fjölskyldu-veran veltir meðal annars fyrir sér hinni fjölskrúðugu íslensku fjölskylduflóru. Hvernig er þessi fjölskylda sem sífellt er verið að tala um? Og hverjar eru raunverulegar aðstæður hennar? RV I ÞESSARI VERU: HIN HEILAGA FJÖLSKYLDA 4 KONUR VIUA MJÚKAN TARZAN 6 ÞAÐ ER AUÐSÉÐ AÐ ÞÚ ERT EINHLEYP OG BARNLAUS 12 ÞAÐ VELUR ENGIN KONA AÐ VERÐA STJÚPA 14 UMSKILNAÐ 19 Viötal viö félagsróögjafana Nönnu og Sigrúnu AFMÆLI 24 ÞINGMÁL 32 Annir og œöi ó Alþingi - Af hverju ekki EB og EES? FIS-LÉn Á FARALDSFÆTI 35 MIG LANGAR AÐ GERA MYND UM „LANDFLÓTTA ÍSLENDINGA" 36 Viötal við Hrafnhildi Gunnarsdóttur í New York „UNDIR HEITRI SÆNG HVÍLIR EINMANA HJARTA“ 38 3

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.