Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 8

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 8
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA Konur segja um karlmenn aö þeir vilji giftast mœörum sínum í ástkonulíki. Sjálfar segjast þœr vilja blíöa og tilfinningaríka menn sem hœgt er aö tala viö. En þegar slíkir menn birtast finnst þeim þeir hlœgilegir og vilja heldur alvöru- karlmenn. borðið og konan beygi af. En hjón verða líka að geta hist á hærra plani, vera karl og kona. Ég vil geta verið pabbi þegar ég er með börnunum mínum, Arne í vinnunni og karlmaður þegar ég er með konu. Hið daglega heim- ilishald slítur samböndunum. Það er ekkert pláss fyrir ástina. Ást er eitthvað sem var til áður en börnin fæddust, finnst fólki. Það er nauðsynlegt að sjá til þess að heimilið sé góður vinnustaður, en þar verður líka að vera pláss fyrir ástina, segir Arne sem nú er ástfanginn upp fyrir haus. Sú hamingjusama býr í eigin íbúð í húsi sem hún ásamt tíu öðrum börðust fyrir að fá að byggja í tíu ár. Þetta er tíu íbúða hús með ýmsum sameiginlegum herbergj- um, m.a. eldhúsi og borðstofu þar sem boðið er upp á heitan mat íjögur kvöld í viku. Hver full- orðinn íbúi hússins býr til mat í félagi við annan tvisvar sinnum í mánuði og börnin hjálpa til. íbúar hverflsins veittu þessu komm- únuhúsi mikla andspyrnu, en núna þremur árum eftir að flutt var inn í húsið eru langir biðlistar < MJUKAN i TARZAN a. -----7----- 3 MEÐ GOÐ LAUN Z SEMVINNUR Q EKKIYFIRVINNU af fólki sem vill kaupa næstu íbúð sem losnar og nágrannarnir koma og nota gufubaðið. Arne er ákaflega hrifinn af eldhúsinu í þessu húsi. Hann kallar það hið kynlausa eldhús og flnnst að hvert heimili eigi að koma sér upp einu slíku kynlausu eldhúsi, sem er aðlaðandi vinnustaður fyrir alla Qölskylduna. - Þar er starfið vel skipulagt og börnin læra snemma að búa til einfaldan mat. í eldhúsinu má ekki vera neinn kvenkyns um- sjónarmaður sem finnur að og leiðréttir. Konur eiga oft erfitt með að sleppa körlunum inn í eld- húsið á þeirra eigin forsendum. En þið eigið ekkert að skipta ykkur af körlunum, þeir geta íjandinn hafl það sjálflr lesið aftan á pakkana. Það mega ekki vera nein kvenleg yflrráð í eld- húsinu og ekkert glingur. Barna- Ijölskyldur hafa ekki tíma og aðstöðu til pjatts. Pjattið i eld- húsinu er eitt af þvi neikvæða sem konur hafa erft frá mæðrum sínum. Og hræðslan við að standa sig ekki nógu vel í hús- verkunum. Þið fyllist angist ef von er á gestum og eruð haldnar tiltektaræði, segir Arne og ég bið hann um að tjá sig meira um neikvæðar hliðar konunnar. - Konur segja um karlmenn að þeir vilji giftast mæðrum sinum í ástkonulíki. Sjálfar segjast þær vilja blíða og tilfinningaríka menn sem hægt er að tala við. En þegar slíkir menn birtast finnst þeim þeir hlægilegir og vilja heldur alvörukarlmenn. Konur vilja mjúkan Tarzan með góð laun sem vinnur ekki eftirvinnu! BÁ f Stofnaðir 1939 Starfsemi námsflokkanna greinist í þessa höfuðþætti: 1. Frjálst bóklegt frístundanám, t.d. fjölbreytt tungumálanám. 2. Frjálst verklegt frístundanám, t.d. bókband, saumar, postulínsmálun og vélritun. 3. Prófnám (öldungadeild) á fornámsstigi ígildi 8., 9 og 10. bekkjar. - Og á framhaldsskólastigi viðskiptabraut, heilsugæslubraut og menntabraut. 4. Starfsnám fyrir ófaglært fólk í atvinnulífinu. (Umönnunarstörf). 5. Flaustið 1990 hófst kennsla í mótelteikningu og teikningu og málun. Auk þess kennum við: a) dönsku, norsku og sænsku, 6-10 ára börnum sem hafa nokkra undirstöðu í málunum. b) fólki sem á við lestrarörðugleika að etja. c) námshópum fatlaðra. Hópar fólks sem æskja fræðslu um e-ð tiltekið efni sem ekki er á námsskrá geta snúið sér til okkar og við reynum að koma til móts við óskir þess. Kennsla ferfram í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1, en einnig er kennt í Gerðubergi og Árbæjarskóla. Innritun í prófadeildir fer fram í Miðbæjarskóla, 2. og 3. september og í tómstundanám 18. og 19. september 1991. Upplýsingar í síma 12992 og 14106. 8

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.