Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 11

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 11
HIN HEILAGA FJÖLSKYLDA Viö veröum að bjarga því litla sem eftir er af innileik og hlýju á meöal fólks. Þaö finnum viö í fjölskyldunni. Vinnustaöir eru í rauninni hin nýja fjölskylda. Þaö er synd aö konur skuli ekki fyrr hafa gert þœr kröfur aö sameina börn og vinnu. Vonandi fundu þœr hamingjuna í faömi fjölskyldunnar. Mér finnst erfitt að gagnrýna dagheimili, af jDví að við þörfn- umst þeirra. En grundvallar- skilyrði þess að skapa góða undirstöðu í sálarlífl barna er að þau hafi náin tengsl við fullorðna frá upphafi. Sé barn númer 16 í röðinni af börnunum á dagheim- ilinu og tveir fullorðnir eiga að fullnægja tilfinningaþörfum 16 barna, þá fær þetta barn ekki mikið. Þetta þorum við ekki að horfast í augu við vegna þess að við fáum svo slæmt samviskubit. Þegar mamman yflrgefur hálfsársgamalt barn sitt á dag- heimili til þess að byrja að vinna grætur hún. Síðan bælir hún sorgina niður. Vegna þess að það neyðist hún til að gera. Svo segir maður að það sé best fyrir börnin að vera á dagheimili. Ef sex mán- aða smábörn fá svo mikið út úr því að leika sér hvert við annað - þá flnnst mér við borga þessa leikþörf of dýru verði. Við neyðumst til að ljúga að okkur sjálfum og hvert að öðru til að sætta okkur við að yfirgefa börnin svona lítil. Sérðu nokkra lausn á þessu? - Þegar samfélagið viðurkenn- ir að aðskilnaður er slæm lausn neyðumst við til að flnna aðrar leiðir. Áður fyrr höfðu konur völd og áhrif innan veggja heimilanna. Nú höfum við misst þau völd. En vandamálið er að við höfum ekki völd á vinnustöðum heldur. Konur gangast undir kröfur vinnustaðanna og það eru kröfur sem karlmenn hafa búið til. Konur hafa samþykkt að láta frá sér börnin til að geta unnið sér inn eigin peninga. Næsta skref er að kreíjast þess að vinnustaðirnir breytist svo að þeir henti betur þörfum kvenna og barna. Ég er ekki að halda því fram að í framtíðinni eigi að setja korna- barn við hverja tölvu. En ég get ekki skilið að börnin geti ekki á einhvern hátt tekið þátt í atvinnulíflnu. Við erum á leið inn í annars konar tækni og aðra atvinnuhætti sem ættu að gera okkur kleyft að sameina vinnu og börn. í Danmörku eyðum við stórum hluta vinnutímans í pásur og kaffidrykkju. Mörgum finnst þeir koma litlu í verk í vinnunni, en eru þar til að þéna peninga og vegna þess að á vinnustaðnum finnst þeim þeir vera eitthvað. En mikill tími fer þar til spillis. Ég þekki margar konur sem segjast heldur taka vinnuna með sér heim, þvi þar nýtist vinnutíminn betur. En þú skrifar samt í nýju bókinni þinni að vinnustaðirn- ir verðifólki æ meira virði. - Vinnustaðir eru í rauninni hin nýja Qölskylda. Nú orðið er mikið gert úr líðan og persónu- þroska starfsfólks, það eru sjúkraþjálfarar á vinnustöðum og starfsfólki er boðið upp á hug- leiðslu. Miklir (jármunir fara í að tryggja tilfinningalega vellíðan starfsfólksins. Gæði lífsins eiga að vera á vinnustaðnum. En þar eiga börnin ekki að vera. Það er synd að konur skuli ekki fyrr hafa gert þær kröfur að sameina börn og vinnu. Kannski eru konur orðnar svo karlmann- legar að þær eru búnar að gleyma grátnum innra með sér þegar þær þurfa að fara frá börnum sínum. Ungbarnamæður eru svo ungar og standa svo neðarlega í valda- píramídanum að þær hafa engin áhrif. Þegar þú spyrð hvernig ég haldi að hægt sé að bjarga fjöl- skyldunni vil ég svara því þannig að það verður að flytja íjölskyld- una þangað sem konan er - á vinnustaðinn. Það er ekki hægt að flytja konuna aftur í eldhúsið. Sá tími er liðinn. En okkur er samt ennþá hótað með því. - Sú hótun er ekki raunsæ í dag. Konur verða skelfingu lostn- ar þegar þeim er hótað að senda þær aftur að eldavélunum. Það er það versta sem gæti gerst. Eldhús er annað orð yfir helviti. Þetta er í rauninni fáránlegt vegna þess að það sem gert er í eldhúsi er í hæsta máta lífsnauðsynlegt. Menning okkar gerir svo lítið úr þætti aðhlynningarinnar. Að- hlynning er eitthvað sem vel- ferðarkerflð sér um og við borgum fyrir. Auðvitað finnst mér að við verðum að fá frí frá börnunum þegar við erum að vinna. En ef við notum ímyndunáraflið gætum við skipulagt barnapössun á vinnu- staðnum og að börnin væru stundum með í atvinnulíflnu og stundum sinntu þau eigin verk- efnum. Verðið sem konur hafa borgað fyrir sjálfstæði sitt er ósýnilegt í samíelaginu. Við þor- um ekki að tala um afleiðingar frelsis okkar. Við erum hræddar um að missa það og vera settar aftur í eldhúsin. Sú hótun hefur ennþá áhrif og kemur í veg fyrir að við þorum að gera kröfur um breytingar. Að vera sendar aftur inn á heimilin þýðir að við missum félagsskapinn á vinnu- staðnum og þá eigum við ekkert eftir. Það má segja að konan hafl losað sig við eitt kerfl feðraveldis- ins og farið inn í annað. En vinnu- markaðurinn er miklu stærra og flóknara kerfl en heimilin og erfiðara að breyta. Það er auð- veldara að kljást við yfirgangs- saman tengdapabba en heilan her embættismanna. En við munum ráða við þá á einhvern hátt. (þýðing og endursögn BÁ) 11

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.