Vera - 01.08.1991, Side 12

Vera - 01.08.1991, Side 12
HIN HEILAGA FJÖLSKYLDA ISSKAPURINN ER FULLUR AF KAMPAVINI OG KONFEKTI g er ógift og barnlaus og mér finnst oft að ég hafi drýgt ein- hverja stórsynd með því. Ég ákvað ung að pipra og stofnaði meira að segja Piparmeyjasamband Suður- lands ásamt sjö vinkonum mín- um (í dag eru þrjár þeirra giftar, tvær fráskildar og við erum þijár pipraðar). Það var í aðra röndina grínfélag en í hina varnarbanda- lag. Nú er ég komin á fertugs- aldurinn og langþreytt á athuga- semdum um fjölskylduhagi mína og lífsstíl. Stundum tek ég þeim létt: „Ekki er hægt að giftast þá enginn býðst“ en stundum ofbýður mér og verð ég þá jafnvel að halda aftur af andstyggilegum athugasemdum eins og: „ertu ennþá gift þessu líka erkifíili? Ætlarðu að eiga annað barn með honum sem hefur aldrei sinnt hinum börnunum ykkar? Er ekki kominn timi til að þú hættir að nota barnið sem skálkaskjól fyrir eigin leti og framkvæmdaleysi?“ Oft „hugga“ ég mig við að þetta sé bara afbrýðisemi i fólki, það sjáist langar leiðir hvað ég er hamingju- söm og hef það gott... en það er skammgóður vermir. Það er t.d. gremjulegt að koma heim úr skemmtilegu fríi og vera aðeins spurð að þvi hvort ég hafl „hitt einhvern“ og að ég hljóti að vera ástfangin af því að ég líti svo vel út. Iðulega byrja þessar umræður um einlífi mitt á jjví að viðstaddar konur kvarta og kveina yfir eigin- mönnum sínum sem gera ekki neitt á heimilinu, eru svo óábyrgir, eigingjarnir o.s.frv. — það er óþarfi að tíunda það hér það kannast líklega flestir við sönginn. Svo er skipt um um- ræðuefni með þvi að einhver snýr sér að mér og segir: Hvernig er þetta eiginlega með þig ertu 12

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.