Vera - 01.08.1991, Qupperneq 18
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA
FJÖLSKYLDU-
ÞJÓNUSTA
ÞJÓÐKIRKJUNNAR
í BURÐARLIÐNUM
Á hausti komanda tekur til
starfa fjölskylduþjónusta Þjóð-
kirkjunnar. Um er að ræða
starfsemi þar sem fólki verður
boðið upp á almenn námskeið
og einkaviðtöl við ráðgjafa, um
allt er lítur að hjónabandi,
sambúð og Qölskyldunni. Séra
Þorvaldur Karl Helgason hefur
verið ráðinn forstöðumaður
þessarar þjónustu, sem verður
til húsa að Laugavegi 13 í
Reykjavík og var hann fús til
að segja lesendum VERU
nánar frá væntanlegri starf-
semi og aðdraganda hennar.
„Undanfarin ár hafa verið
haldin svokölluð hjónanám-
skeið í Skálholti og víðar, þar
sem boðið hefur verið upp á al-
menna fræðslu og umræður
varðandi hjónabandið og fjöl-
skylduna. Þarna gefst fólki
tækifæri til að vera saman yfir
helgi, burt frá ys og þys hvers-
dagsins. Þessi námskeið eru
eins konar angi af þeirri um-
ræðu sem verið hefur innan
Þjóðkirkjunnar varðandi fjöl-
skyldumál undanfarin ár.
Vissulega er kirkjan alltaf að
fást við íjölskyldur og einstakl-
inga í gleði og sorg. Mikill tími
okkar presta fer einmitt í ein-
hverskonar sálgæslu. Nú á
tímum aukinna hjónaskilnaða
höfum við verið að velta þvi
fyrir okkur hvernig kirkjan
gæti staðið að frekari fræðslu
og ráðgjöf. Við höfum einnig
mikinn áhuga á forvarnarstarfi
eins og námskeiðum fyrir
hjónaefni. Þar væri farið í ýmsa
innviði hjónabandsins t.d.
barnauppeldi, fjármál og
skyldur einstaklinganna innan
sambandsins.
Ég held að það sé ekki
spurning að þörfin fyrir hvers-
konar hjónaráðgjöf hefur auk-
ist gífurlega undanfarin ár.
Hver einstaklingur stendur
frammi fyrir óheyrilegum fjölda
möguleika í lífinu, hvort sem
það snertir atvinnu, menntun,
neyslu eða val á lífsförunaut.
Margir vita ekki almennilega i
hverju hlutverk þeirra er fólgið
innan fjölskyldunnar og þofa
ekki álagið sem fylgir skyldum
hversdagsins. Þessir einstakl-
ingar sjá ef til vill enga aðra
leið nema þá að skilja og byrja
nýtt líf annars staðar með
öðrum aðila. En skilnaði fylgja
mikil tilfinningaleg átök, sem
snerta jafnt maka sem börn.
Og skilnaður er einn af þeim
möguleikum sem fólk þarf að
kljást við í lífinu.
Með fjölskylduþjónustu
Þjóðkirkjunnar opnast leið
fyrir Qölda fólks til að leita sér
stuðnings á erfiðum stundum,
auk þess að stuðla að fræðslu
og ráðgjöf fýrir alla þá er til
okkar leita.“
GG
Gefiö meögöngunni
léttan og litríkan blœ í fötum frö okkur.
Nýjar vörur í hverri viku.
Sími 626870
Opið virka daga 10-18 • LaugardagalO-14.
f
18