Vera - 01.08.1991, Page 21
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA
koma upp. Það er því miður
allt of algengt að fólk greini
ekki á milli þessara innri og
ytri þátta. í staðinn fyrir að
gera upp tiliinningar sínar, fer
baráttan fram í kringum efnis-
lega hluti. Allar nýrri kenn-
ingar miðast hins vegar að þvi
að hjálpa fólki til að skilja og
aðgreina þessa þætti og vinna
sameiginlega að viðunandi
lausn, í stað þess að berjast
með kjafti og klóm hvort í sínu
horni, til að ná fram rétti
sínum. Réttarhugtakið tekur
fyrst og fremst mið af laga-
legum þáttum. í tilfinn-
ingamálum er mikilvægt að
skilja sjálfan sig í samhengi við
þær lífsaðstæður sem verið er
að glíma við hverju sinni.
Sætta sig við tilfinningar sínar
og iæra að meðhöndla þær
sjálfum sér í hag. Skilnaðurinn
er ekki| einungis endir heldur
einnig upphaf. Sú endurupp-
bygging sem þarf að fara fram
eftir skilnað feiur í sér bæði
úrvinnslu sorgarinnar og að
koma auga á og opna fyrir nýja
möguleika hjá sjálfum sér.
SIGRÚN: Aðstæður í þjóð-
félaginu hafa breyst mikið á
undanförnum árum. Fólk hef-
ur óendanlega mörg tækifæri
til þess að kynnast nýju fólki
og mynda ný sambönd. Margs
konar freistingar verða á vegi
einstaklinganna og höftin eru
minni en áður. Venjurnar til að
halda sig við eru heldur ekki
eins styrkar og áður fyrr. Það
er til dæmis algengara að fóik
tengist töluvert sterkum bönd-
um í tengslum við starf sitt og
það er mjög auðveit að tilfinn-
Félagsráögjafarnir Nanna (t.v.) og Sigrún. Ljósm. Kristín Bogadóttir
ingarnar ruglist saman.
Flestir fara í gegnum skiin-
að í von um að losna út úr
einhverjum erfiðleikum og þrá
eftir betra lífi annars staðar
eða með öðrum. Það kemur
mörgum á óvart hversu erfitt
það getur verið að vinna sig út
úr fortíðinni. Bergmáiið úr
gamia hjónabandinu ómar oft
lengi. Margir eiga einnig erfitt
með að tala saman eftir skiln-
aðinn og oft hjálpar það fóiki
að setjast niður með hlutlaus-
um aðila og ræða málin.
Sumum gagnast auðvitað vel
að tala við góða vini sína og
ættingja, en margir vilja ekki
draga ijölskylduna inn í einka-
mál sín. Bækur um þessi mál
KVENNARÁDGJÖFIN hefur
gefið út bækling um skilnað,
þar sem m.a. er íjallað um
réttarstöðu hjóna við skilnað,
forsjá barna, eignaskipti og
fleira. í formála hans segir m.a.
„kvennaráðgjöfin er ætluð
konum og veitt af konum. Ef
þú ert með spurningar eða
vandamál lagalegs eða félags-
legs eðlis erum við reiðubúnar
til þess að gera okkar besta til
að aðstoða þig við að greiða úr
þeim.“
Á undanförnum árum hafa
hátt á þriðja hundrað konur
leitað til Kvennaráðgjafarinnar,
til að fá upplýsingar varðandi
hafa auk þess komið mörgum
að gagni. Það er verst hversu
fáar hafa verið þýddar eða
samdar á íslensku.
NANNA: Það er okkar
reynsla og afar ánægjulegt að
fólk virðist leita sér hjálpar í
hjónabandsráðgjöf mun fyrr,
áður en í óefni er komið. Og
það hefur einnig aukist að
miðaldra fólk leiti sér aðstoðar,
ef til vill til að endurskoða
samning sem það gerði iýrir
kannski íjörtíu árum, með
tilliti til breyttra aðstæðna. Við
verðum einnig varar við að
margar konur á „besta“ aldri
vilja skilnað, fyrst og fremst til
að geta notið sín betur sem
einstaklingar, „vilja linna sjálfa
sig“ eins og þær orða það. Þær
eru ef til vill búnar að koma
upp börnum sínum og óska
ekki eftir skilnaði til að komast
í ný sambönd. Á ákveðnu ald-
ursskeiði er sjálfsmynd kon-
unnar svo samofin ijölskyld-
unni og margar konur þrá
breytingar jaegar börnin eru
vaxin úr grasi og ummönn-
unar hlutverkinu er lokið.
SIGRÚN: Ég svara þvi hik-
laust játandi, þegar ég er spurð
að því hvort hjónabandið eigi
sér viðreisnar von á íslandi í
dag. Tíðni skilnaða er ekki
einhlítur mælikvarði á hjóna-
21
skilnað. Rétt er að benda
konum sem á þurfa að halda, á
að nýta sér þessa þjónustu,
sem er ókeypis. Sími Kvenna-
ráðgjafarinnar er 21500.
FÉLAG FRÁSKILINNA eru
samtök sem beita sér fyrir
fræðslu og félagsstarfi fyrir
fráskilið fólk og börn þeirra.
Haldnir eru fundir annaðhverl
föstudagskvöld kl. 20,30 í
Risinu við Hveríisgötu. Nánari
upplýsingar veita Kristrún
Óskarsdóltir sími: 42275 og
Svava Júlíusdóttir sími:
26096.
bandið. Skilnaður segir meira
um þá staðreynd að við lifum á
umbrotatímum og væntingar
fólks til hvors annars hafa
breyst. Það reynir mikið á
mannleg tengsl og ekki síst á
parsambandið og foreldra-
hlutverkin, þegar félagslegu
aðstæðurnar eru jafn óhag-
stæðar barnafjölskyldum og
raun ber vitni í islensku
þjóðfélagi.
NANNA: Ég held að í öllum
manneskjum blundi sú þrá að
eiga náið samneyti við aðra
manneskju. Þetta lærum við í
okkar fyrstu tengslum og það
er eins og við leitum eftir slík-
um tilflnningaböndum í lífinu.
Við getum liæglega lent í mörg-
um skipbrotum, en jiað aftrar
okkur oftast ekki frá þvi að
reyna aftur að ná sterku
sambandi við aðra manneskju.
Við mælum þó með því, að fólk
fari sér hægt í annað samband
eftir skilnað, þvi það hefur sýnt
sig að það er mjög erfitt að
byija uppá nýtt þegar leifar af
gamla sambandinu eru enn til
staðar.
Þess vegna er mikilvægt
upp á framtíðina og lífið eftir
skilnað að fyrra samband sé
uppgert. Að fólk gefi sér tíma til
að kveðjast vel og halda siðan
áfram.
GG
co