Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 27
AFMÆLI
AÐ FESTA HALANN Á KÖTTINN
Teiknuð er stór mynd af ketti
(eða öðru dýri). Bundið er fyrir
augun ð þótttakendum og er
þeim hjálpað að myndinni af
kisu. Þeir eiga síðan að teikna
rófuna á köttinn og er oft mjög
gaman að sjá útkomuna þeg-
ar allir hafa fengið að spreyta
sig.
FUGLALEIKUR (Útileikur)
Einn er kóngur, annar karl og
hinir fuglar, og fœr hver fugl-
anna nafn sitt hjá kónginum.
Karl kemur til kóngsins og segir
„komdu scell kóngur minn".
„Komdu sœll karl minn" svarar
kóngur. „Geturðu selt mér
fugla?" spyr karl. „Ef þú getur
nafn þeirra og nœrð þeim"
segir kóngur. Kárl fer þá að
geta og nefnir ýmis fuglanöfn;
spói, lóa, hrafn, álft o.s.frv.
Þegar karl hittir á nafn einhvers
fuglsins, hleypur sá í stóran
hring og þá á karlinn að reyna
að ná honum og klukka hann
áður en hann kemst aftur til
kóngsins.
POTTLEIKUR (Útileikur)
Tveir eða fleiri eru tröll og fer
tala þeirra eftir því hve margir
eru í leiknum. Aðrir þátttak-
endur eru menn. Tröllin hafa
afmarkaðan reit, pottinn og
eiga þau að reyna að ná öllum
mönnunum og koma þeim í
pottinn. Mennirnir geta veitt
mótspyrnu, en mega ekki
hjálpa öðrum, en tröllin mega
hjálpast að við að ná mönn-
unum. Þegar búið er að koma
manni í pottinn má hann ekki
fara þaðan, nema frjáls maður
komi og snerti hann og segi
„frels". Eitt eða fleiri tröll gœta
pottsins og reyna að koma í
veg fyrir að menn frelsi aðra. Ef
tröll nœr að klukka þann sem
frelsaður er, áður en hann
kemst frá pottinum, verður
hann að vera kyrr.
Af öðrum leikjum sem ekki
verða tíundaðir hér, má nefna
flöskustút, fram fram fylking,
feluleik, eltingaleik, að leika
leikrit...
27