Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 29

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 29
HÉÐAN OG ÞAÐAN Teygjuœfingar eftir kvennahlaupið. KVENNA HLAUPÐ Þetta byrjaði allt saman um páskana þegar ein vinkvenna minna ákvað að fara að þjálfa fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Flestar sameiginlegar stundir okkar höfðu farið í að tala um að nú væri kominn tími til að hreyfa sig og alltaf átti að byrja daginn eða helgina eftir. En sem sagt einn daginn var hún byrjuð að þjálfa og farin að hlaupa nokkrum sinnum í viku. Og auðvitað hafði hún áhrif og samviskan byrjaði að naga mig: „Það er fínt veður núna til að taka einn sprett“, »Þú hefur nægan tíma í dag, vel upplögð o.s.frv.", en samt frestaðist þetta alltaf. Of lítill tími, átti enga hlaupaskó, bið eftir því að hafa efni á skóm o.s.frv. En þegar hún tilkynnti að Kvennahlaupið væri á næsta leiti var ekki lengur hægt að finna afsökun. Þrátt fyrir allt var þetta nú KVENNAHLAUP og samviskan sagði: „Nú ferð þú af stað og hleypur með kynsystrum þínum“. Og þar með var það ákveðið. Vikan byrjaði með tilhlökk- un og óhóílegri bjartsýni, það væri nú ekkert mál að skokka þessa 5 krn (bjartsýnin var á það háu stigi að 2 km skokk var ekki til umræðu). En því nær sem dró laugardeginum fór kvíðinn að segja til sín. Ég hefði átt að taka einhvern tíma í undirbúning, skokka einn hring í Laugardalnum (sem ég reyndi satt að segja eitt kvöldið þegar enginn sá til, en gafst fljótt upp). En hvað um það, bjartsýnin var enn til staðar. Loks rann stóri dagurinn upp. vinkonan mætti í hlaupa- dressinu til að draga mig með og nú var ekki aftur snúið þó að kjarkurinn væri svo til alveg horflnn. Þegar við komum í Garðabæinn var urmull af konum, já konum af öllum stærðum og gerðum. Þetta leit bara ágætlega út, maður var ef til vill ekki svo illa staddur í þessum föngulega hópi. Það væri allavega auðvelt að láta sig hverfa í fjöldann, þvi þarna skipti vaxtarlag og aldur engu máli. Jæja síðan byrjaði hlaupið, þetta leit út fyrir að vera auðvelt, en eftir flmm hundruð metra var ég að hugsa um að láta 2 km nægja, ég gæti alveg sætt mig við það. Það væri alveg óþarfl að reyna við lengri vegalengd. hún væri bara fyrir einhverja langhlaupara. En þegar ég sá að flestar héldu áfram í 5 km þá kom upp einhver ókunnug þrjóska innra með mér. Með þessum konum ætlaði ég! Á leiðinni hugsaði ég aðeins um að komast í mark, hvernig sem ég færi að þvi. En á miðri leið var ég alveg búin, komin með blóðbragð í munninn og þvag- blaðran komin upp í háls. Þarna ætlaði ég að hætta, láta mig hverfa og fá far með einhverjum bíl í bæinn. En mitt í þessum hugleiðingum skokkuðu nokkrar miðaldra konur framhjá og var ekki að sjá að þær væru neitt að gefast upp. Þetta var ekki sjón sem styrkti sjálfsímyndina, vera uppgefin og útkeyrð á meðan 30 árum eldri konur tippluðu flmlega framhjá. Nei, svona mátti þetta ekki enda og í hug- anum birtist mynd af stóru súkkulaðistykki sem mætti renna niður í maga án sam- viskubits eftir alla þessa brennslu, en ekki fyrr en í mark væri komið. Þetta gaf aukna krafta og áður en ég vissi af var ég komin í mark, gegnblaut, angandi af svita og aum í öllum skrokknum, en umfram allt ánægð. Ég var að springa úr monti og leit á allar þessar kven- hetjur i kringum mig, sem komu sveittar og móðar í mark. Mikið vorum við hraust- ar allar þessar konur og allar í fagnandi sigurvími, sem við höfðum svo sannarlega unnið fyrir. Reyndar er ég miklu meira en ángæð með þetta afrek okkar kvennanna, ég svif enn um í sigurvímu. Ég tók ekki af mér verðlaunapening- inn næstu daga - þvi að fólk varð að sjá að ég tók þátt í KVENNAHLAUPINU. Og hér verður ekki látið staðar numið, næsta ár ætla ég að vera i betri þjálfun og hlaupa flmm kílómetra með glæsibrag! Tískuverslunin Rebekko Glcesibce Sími 34000 29

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.