Vera - 01.08.1991, Page 30
KVENNABLAÐ
KVENN
A
BL
A
Ð
Nýtt kvennablað var
gefið út í Reykjavík á
árunum 1940-1967.
Guðrún Stefánsdóttir
var ritstjóri þess alla tíö
og blaðið var gefið út á
kostnað og ábyrgð
hennar og samstarfs-
kvenna hennar, þeirra
Maríu Knudsen og
Jóhönnu Þórðardóttur.
í upphafsorðum Guðrúnar
segir meðal annars: „Þótt
kvennablað hafi ekki þrifizt hér
á landi, síðan að konur fóru að
gefa sig við stjórnmálum, og
skipa sér í ólíka flokka, er
ástæðulaust að trúa algjörlega
á framhald þeirra vanþrifa.“
Nýtt kvennablað kom út átta
sinnum á ári (nema þriðja árið
komu aðeins út fjögur
tölublöð) í 27 ár.
Efni blaðsins er bæði þýtt
og frumsamið. Jóhanna Þórð-
ardóttir skrifar t.d. um Sið-
Jerðileg vandamál og kven-
réíiindi þar sem hún gagnrýnir
sögusagnir um íslenskar kon-
ur og hermenn. Blaðið birtir
reyndar nokkrar greinar þar
sem slík umræða er fordæmd
og hanskinn tekinn upp fyrir
íslenskar konur. Þess er krafist
árið 1940 að konur verði
ráðnar í lögreglulið Reykja-
víkur vegna hins „óvanalega
ástands". Bandalag kvenna
hafði fyrst farið fram á það árið
1932 að konur yrðu ráðnar í
lögregluna og ítrekað beiðni
sína árlega upp frá því.
Áskoranir bárust einnig frá
Barnaverndarnefnd, land-
lækni og félagi íslenzkra hjúkr-
unarkvenna. „Verkahringur
kvenlögreglu mun ætíð liggja á
nokkuð öðrum sviðum en
lögregluþjónsins. ... Starf
lögreglukonunnar liggur fyrst
og fremst í því, að koma í veg
fyrir afbrot og hjálpa þeim,
sem gerst hafa brotlegir til að
komast á réttan kjöl aftur. Hún
hefir til meðferðar öll mál sem
fyrir koma innan lögreglunnar
varðandi konur og börn; er
álitið að konur hafi næmari
skilning á kjörum hinna seku,
en þar er oft að finna orsökina
til brotsins, og að þær geti því
frekar, með leiðbeiningum,
fræðslu og ýmiskonar hjálp
hindrað að haldið verði lengra
áfram á ógæfubrautina... Eitt
af alvarlegustu viðfangsefnum
kvenlögreglu er siðferðismál í
sambandi við ungu stúlk-
urnar. ...Virðist sjálfsagt, að
konur í lögreglunni eigi við
sömu launakjör að búa og
lögregluþjónarnir, og njóti
sömu hlunninda og þeir.“
Framan af birtust í blaðinu
nokkrar greinar tengdar
kvennabaráttu, t.d. er grein í
1. tbl. eftir Ingu Lárusdóttur
um kvenréttindahreyfinguna í
Bandaríkjunum, Evrópu og á
íslandi. Fréttir eru frá alþjóða-
kvenréttindaþinginu árið 1939
og stefnuyfirlýsing Alþjóða-
kvenréttindasambandsins er
birt. Einnig er töluvert um
stytt útvarpserindi, t.d. um
þátt konunnar í menning-
arsögunni, stöðuval kvenna,
heilsuvernd barnshafandi
kvenna og menntun kvenna.
Menntun kvenna fær
töluvert rými í blaðinu, bæði er
ijallað um hússtjórnarskóla og
30