Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1972, Síða 13

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1972, Síða 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 61 jurta- eða dýraríkinu. Samhengið milli neyzlu kolvetna og kolestorols í blóði er mun ákveðnara en milli fitu og kolesterols. Kolesterolmyndunina er hægt að takmarka með neyzlu eggjahvítuefna. Nýjar tölur frá Mjólkursamsölu Reykjavíkur sýna að mjólkurneyzla stendur hér í stað, en eykst ekki eins og flest önnur matvælaneyzla. Ekki er þó hægt að greina samdrátt. Neyzla mjólkurafurða er alltaf nokkuð háð niðurgreiðslum, en hún fer greinilega vaxandi einkum með tilkomu þeirra nýjunga, sem nú eru komnar á mark- aðinn. Þar má nefna ísframleiðslu, sem eykst nú hröðum skrefum, síðan hefir komið sýrður rjómi til matargerðar, súkkulaðimjólk og nú að lokum Yougurt en vinsældir hennar hafa orðið það miklar að eftirspurn er mun meiri en framboð. Ostaneyzsla hefir aukizt verulega undanfarin ár og er nú um fimm kíló á mann að meðaltali árlega. Ostaneyzla jókst reyndar lítið síðasta áratug en tók við sér fyrir þrem árum og hefir aukist um 40—50% á þeim tíma. Hér eru framleiddar milli 20 og 30 tegundir osta, sem skiptast í þrjá meginflokka. Fyrst eru svokallaðir fastir ostar, mest 30 og 45% mjólkurostur og selst sá flokkur bezt. Þá koma mysuostar og loks smurostar. Ostarnir eru gerðir eftir erlendum hugmyndum yfirleitt og standast fyllilega samanburð við erlenda. I fyrra voru framleidd hér um 900 tonn af ostum en framleiðslan fer nokkuð eftir árferði og mjólkurmagni. Smjörfjallið margumtalaða er horfið. Aðeins eru eftir um 250 tonn og eru það eðlilegar lágmarksbirgðir, þar er um mánaðarneyzla. Smjörneyzla er nú 7.7 kíló á mann og fer nokkuð eftir efnahag og niðurgreiðslum. Framleiðsluráð landbúnaðarins gefur þær upplýsingar að íslendingar séu mesta mjólkurþjóð í heimi. Hvert ein- asta mannsbarn á landinu drekkur að meðaltali um 280

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.