Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Qupperneq 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
5
nágrannabær Ystad, en við það fjölgaði fæðingum um 150—160.
Fyrir þremur árum flutti deildin í nýtt og snoturt húsnæði.
Skipulag og starfshættir
Foreldranámskeiðin eru þýðingarmikill þáttur í fæðingarundir-
búningi í Ystad. Signi leggur þunga áherslu á að ljósmæður haldi
námskeiðin og séu þar með virkar í fæðingarundirbúningnum. Með
því móti skapist tengsl og kunningsskapur milli verðandi foreldra og
ljósmæðra, og það hindri þá leiðu sérhæfmgu sem birtist í því að ný
andlit mæta foreldrum í mæðravernd, á fæðingargangi, á sængur-
kvennagangi og í ungbamaeftirliti. Til að rjúfa slíka sérhæfmgu
leggur Signi enn fremur áherslu á að fæðingardeildir annist bæði
fæðingar og sængurlegu.
Foreldranámskeiðin eru uppbyggð með svipuðum hætti og tíðkast
hér á landi, að því undanskildu að meiri áhersla er lögð á að benda
konum á að þær hafi fullan rétt á að velja fæðingarstellingar. Einnig
er konum bent á ólíkar deyfmgar sem þær geti valið um. í því sam-
bandi eru þær upplýstar um hvernig lyf og deyfmgar verka.
Meginhugmyndin að baki fæðingarundirbúningi og fæðingu er sú að
hin verðandi móðir sé virkur þátttakandi í fæðingunni og að hún
stjórnist sem minnst af starfsfólki fæðingardeildarinnar.
Fæðingardeildin er vel búin nauðsynlegum tækjum sem tilheyra
nútíma fæðingardeildum. Aðstæður fyrir fæðandi konur og sængur-
konur er og til fyrirmyndar. Einnig er vel búið að starfsfólki.
Fæðingarstofur eru þrjár í Ystad. Þær eru vel búnar öllum öryggis-
tækjum, auk þess sem þær em einstaklega hlýlegar. Endurlífgunar-
herbergi fyrir nýbura er gegnt fæðingarstofúm. Á deildinni eru sam-
tals 20 rúm fyrir sængurkonur og skiptast þau á 1 fjögurra manna
stofú, 2 eins manns stofur og 7 tveggja manna stofur. Allar em stof-
urnar vistlegar og húsgögn einkar þægileg m.t.t. kvenna með sauma,
auðvelt er t.d. að standa upp úr stólum og rúmum.
Ulla Stina Björnsmark, núverandi deildarstjóri, sem tók við af
Signi, sagði mér í viðtali að þótt mikið sé lagt upp úr hinni náttúrulegu
hlið fæðingarinnar, þá miðist starfshættir við að öryggi móður og
barns sé ávallt í fyrirrúmi. Til marks um það starfa fjórir kvensjúk-
dóma- og fæðingarlæknar og tveir barnalæknar við deildina.
Ennfremur upplýsti Ulla Stina mig um að keisaratíðnin hafi einungis
verið 9.7% árið 1986. Sama ár fengu þrjátíu af hundraði kvenna