Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 36
36
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
hjá samanburðarhópnum. Hjá baðhópnum gekk kollur niður um 1,39
einingar á klst. en hjá samanburðarhópnum um 0,45 einingar.
Sársaukamat baðhópsins var að meðaltali 64 stig við byrjun
athugana en samanburðarhópsins 50 stig (af 100 stigum). Hjá bað-
hópnum dró úr sársauka að mati kvennanna um 7,2 stig á meðan
útvíkkun stóð en hjá samanburðarhópnum óx sársauki um 8,5 stig.
Vegna mismunar á sársaukamati í byrjun var talið að um svipaðan
sársauka væri að ræða á böðunartíma hjá báðum hópunum. Á næstu
90 mínútum breyttist sársaukamat hjá báðum hópunum með sama
hætti og var vaxandi sársauki þann tíma. Hlutfall sogklukku, klipp-
inga og keisaraskurðar var það sama í báðum hópum. Þörf fyrir örvun
og pethidín var næstum tvöföld í samanburðarhópnum, en þessi
munur var ekki talinn marktækur. Notkun annarra kvalastillandi lyíja
var eins í báðum hópum. Ástand nýbura var eins fyrir báða hópana
táknað með Apgar Score og meðal þyngdartap eftir fæðingu var það
sama. Marktækur munur var á hversu miklu færri börn úr baðhópnum
fengu pelaábót fyrstu ævidagana.
Að því er varðar fylgikvilla hjá mæðrunum kom enginn marktækur
munur fram hjá hópunum tveim.
Bæði fyrir og eftir bað voru 10.000 venjulegar vatnsbakteríur í
baðvatninu í hverjum ml. Eftir böðun hafði bæst við óverulegt magn
af ósmitnænum húð- og þarmabakteríum. Sýni tekin af botni og
hliðum baðkarsins eftir sótthreinsun með sápuvatni og spritti sýndu að
þessi hreinsun var fullnægjandi.
Flestar kvennanna voru ánægðar með dvölina í kerlauginni (80 af
88) en átta þeirra kvörtuðu undan minni háttar óþægindum svo sem
svima, kvíða og háu rakastigi í herberginu. Konurnar í baðhópnum
voru spurðar hvort þær mundu kjósa að far í kerlaug í næstu fæðingu,
og allar að átta undanskildum sögðu svo mundi verða ef þær ættu þess
kost.
Umsögn
Árið 1983 greindi Odent frá 100 vatnsfæðingum. Hann mælti með
þeim fyrir konur sem væru með sársaukafulla samdrætti og ófull-
nægjandi útvíkkun legháls. Böðun fór fram á víkkunarskeiðinu en
langflestar kvennanna æsktu að koma úr kerlauginni fyrir sjálf
fæðinguna. Meiðingar voru fáar hjá konunum, þ.e. 29 minni háttar
rifur en engar klippingar. Ástand nýbura var talið gott en Apgar Score
var ekki tilgreint. Eitt barn sem bar að í flókinni hnakkastöðu í 37.