Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 37
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
37
viku fékk heilahimnublæðingu. Odent dró þá ályktun að engin áhætta
væri samfara vatnsfæðingu. Við þessa könnun var enginn saman-
burðarhópur.
I tilraun þeirri sem þessi grein fjallar um voru bornir saman tveir
hópar kvenna sem höfðu gengið í alla stað eðlilega með. Röskur
helmingur kvennanna óskaði að dvelja í kerlaug fyrir fæðinguna
meðan hinn hlutinn óskaði þess ekki. Með þessum hætti voru bornir
saman tveir hópar kvenna sem fengu óskir sínar uppfylltar hvað þetta
atriði varðaði.
Almennt er talið æskilegt að velja af handahófi í hópa þegar bera
skal saman tvær aðferðir. Mat rannsóknaraðila í þessu tilfelli var þó að
val eftir handahófi mundi leiða til að konur sem æsktu að ganga í kerlaug
lentu í samanburðarhópnum og öfugt og að slíkt hefði neikvæð áhrif
á konurnar og þar með rannsóknina með ófyrirséðum túlkunar-
vandamálum.
Rannsóknin leiddi ekki í ljós neinn marktækan mun milli hinna
tveggja hópa hvað varðar tíðni á þörf fyrir læknisaðgerðir, lyfja-
notkun og ástand og fylgikvilla hjá konum og nýburum. Það dró úr
sársauka hjá baðhópnum fyrst í stað meðan böðun stóð yfir. En
sársaukamat þessa hóps var verulega hærra í upphafi. Þessi munur er
óútskýrður en gæti stafað af því að konurnar í baðhópnum hafi
ofmetið sársauka sinn í von um að úr honum drægi við böðunina. Það
styður þessa skýringu að eftir hálftíma bað var sársaukamat beggja
hópa orðið það sama. Baðið virðist flýta fyrir víkkun legops og
framrás höfuðs fósturs, en heildarlengd fæðingar frá byrjun hríða talin
var sú sama hjá báðum hópum.
Ályktun
Dvöl í kerlaug meðan leghálsvíkkun fer fram getur örvað þessa
víkkun og dregur e.t.v. eitthvað úr sársauka. Baðið styttir þó ekki
samanlagðan þann tíma sem fæðingin tekur né fækkar læknisað-
gerðum eða dregur úr lyfjanotkun. Það eykur ekki áhættu móður eða
barns hvað varðar fylgikvilla og mengun baðvatns af bakteríum er
óveruleg og án sýkingarhættu. Það verður því að teljast sanngjarnt að
bjóða þeim konum sem þess óska að ganga í kerlaug fyrir fæðingu,
þar sem meðferðin er skaðlaus og sumar konur kunna að geta notið
hennar.
Með þessari rannsókn var engin afstaða tekin til þess, hvort fæðing
í vatni eigi rétt á sér sem ein aðferð í nútíma fæðingarhjálp.